[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fótbolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Beitir Ólafsson er ekki þekktasta nafnið í íslenskri knattspyrnu. Og hvað þá árið 2017 þegar KR ákvað að fá hann til liðs við félagið.

Fótbolti

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

Beitir Ólafsson er ekki þekktasta nafnið í íslenskri knattspyrnu. Og hvað þá árið 2017 þegar KR ákvað að fá hann til liðs við félagið. Nú stendur Beitir uppi sem Íslandsmeistari með KR og varði mark liðsins af stakri prýði enda hefur KR haldið hreinu í átta leikjum á Íslandsmótinu af tuttugu. Morgunblaðið hafði samband við Beiti og spurði hvernig upplifun það væri að verða Íslandsmeistari?

„Þetta er virkilega þægileg upplifun. Ég dreg ekkert úr því. Auk þess er fínt fyrir okkur að vera búnir að klára dæmið og þurfa ekki að stressa okkur á þessu í lokaleikjunum. Á þessum árstíma fer veðrið líka að setja svip sinn á leikina og bitnar á spilamennskunni. Líðanin er góð og komið hefur mér virkilega á óvart hversu margir samgleðjast manni í þesssari stöðu. Ég hef fengið mörg skilaboð en einnig samgleðst fólk manni á vinnustaðnum eða bara úti í búð,“ sagði Beitir sem býr þó ekki í Vesturbæ Reykjavíkur heldur í Kópavoginum en það breytir engu. „Hér hikar enginn við að óska mér til hamingju sem er yndislegt.“

Markvörðurinn segir KR-inga hafa verið hárrétt stillta þegar Íslandsmótið hófst og velgengni hafi því ekki komið honum á óvart. „Mér fannst við vera á rosalega góðri vegferð í vetur og unnum það sem hægt var að vinna í vetur og vor. Við fórum því fullir sjálfstrausts inn í sumarið og höfðum fulla trú á því sem við vorum að gera. Andrúmsloftið var þannig að maður fann fyrir þvílíkum meðbyr og andinn í hópnum geggjaður. Við vorum allir á sömu blaðsíðu. Maður hafði ekki trú á því að við gætum tapað eins og sýndi sig þegar við lentum 0:2 undir á móti Val en unnum það upp. Hugarfarið var þannig að ekkert gæti brotið okkur niður og við gætum alltaf komist aftur inn í leikina.“

Mótlætið er góður skóli

Þegar KR-ingar fóru að sýna hvað í þeim býr jókst einnig stemningin á áhorfendapöllunum til muna en mætingin á KR-völlinn hafði dottið nokkuð niður síðustu sumur.

„Já, er þetta ekki alltaf þannig að þegar fer að ganga vel þá koma fleiri á völlinn? Maður finnur virkilega fyrir því í Vesturbænum þegar vel gengur en þegar gengur illa þá finnur maður einnig fyrir því. Það er allt í lagi. Þegar illa gengur þá er í góðu lagi að upplifa það og finna að fólk sé óánægt. Þá er bara spurning úr hverju þú ert gerður til þess að geta haldið áfram og gera betur. Þegar fer að ganga betur þá fær maður það margfalt til baka frá fólki. Þetta er náttúrlega svolítið sérstakt andrúmsloft í kringum KR og það er góður skóli fyrir leikmenn að ganga í gegnum þegar liðinu gengur illa. Hefðin er sú að ávallt er stefnt á að vinna titilinn. Ef þú ætlar að vera í KR þá verður þú bara að standa undir því,“ benti Beitir á.

Kallið kom frá þingmanninum

Ferill Beitis er nú nokkuð frábrugðinn því sem gengur og gerist hjá fastamönnum í Íslandsmeistaraliði. Hann lék talsvert í neðri deildunum eftir að hafa fengið sitt knattspyrnuuppeldi í HK en var síðan fyrirliði HK í nokkur ár þar sem hann varð m.a. meistari í 2. deild árið 2013. Þegar hann var um þrítugt lék hann með Keflavík árið 2016. Tók hann sér pásu frá sparkinu í eina sjö mánuði og var með hugann við annað þegar kallið frá KR kom óvænt. KR-ingar lentu þá í vandræðum með markvarðarstöðuna og þáverandi þjálfari KR, og núverandi alþingismaður, Willum Þór Þórsson, fékk Beiti í KR árið 2017. Nú tveimur árum síðar stendur Beitir uppi sem Íslandsmeistari 33 ára gamall.

„Ég lauk tímabilinu 2016 með Keflavík og ákvað einbeita mér að öðru í einhvern tíma. Ég var ekki endilega hættur en hafði ekki æft í sjö eða átta mánuði. Þar af leiðandi var ég að sjálfsögðu ekki með hugann við úrvalsdeildina og hvað þá KR. Þegar hringt var í mig þá ákvað ég að taka slaginn. Maður segir ekki nei við stærsta félag á Íslandi. Að vera nú Íslandsmeistari er eitthvað sem gerir mikið fyrir ferilinn. Það er rosalega skemmtileg viðurkenning að fá að taka þátt í því að vinna titil og vera í svo geggjuðu liði.“

Yfirlýsing Rúnars

Skömmu fyrir Íslandsmótið lét Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, þau ummæli falla opinberlega að Beitir væri besti markvörður í deildinni. Svelgdist Beiti ekkert á kaffibollanum þegar hann heyrði þessa yfirlýsingu?

„Nei nei. Ég held að þarna hafi verið umfjöllun um einhvers konar einkunnagjöf þar sem við markverðirnir í KR komum ekki vel út. Rúnar var auðvitað á vissan hátt að verja sínar ákvarðanir því í þessu fólst gagnrýni á hann sem þjálfara að velja þessa markverði. Hann var í leiðinni að verja sína menn og var í raun að segja að þessi gagnrýni ætti ekki rétt á sér. Á sama tíma þurftum við auðvitað að standa okkur fyrst hann henti þessu fram. Þá þurftum við að standa okkar plikt og gera þetta eins og menn,“ sagði Beitir og hló en hann bætti því við að sjálfstraustið hefði verið til staðar hjá honum hvort sem var eftir gott gengi í undirbúningsmótunum.