Júlíus Kemp
Júlíus Kemp
Íslenska hryllingsmyndin Reykjavík Whale Watching Massacre, eftir leikstjórann Júlíus Kemp, verður sýnd í kvöld á vegum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, sem hefst 26. september.
Íslenska hryllingsmyndin Reykjavík Whale Watching Massacre, eftir leikstjórann Júlíus Kemp, verður sýnd í kvöld á vegum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, sem hefst 26. september. Myndin fjallar um hóp ferðamanna sem fara í hvalaskoðunarferð. Báturinn bilar og hvalveiðiskip kemur til bjargar, eða svo halda skipverjar í fyrstu. Hefst síðan blóðbað mikið. Myndin verður sýnd á Center hotel Plaza kl. 20.45. Frekari upplýsingar má finna á vef hátíðarinnar, riff.is.