Rannveig Sigurðardóttir
Rannveig Sigurðardóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir hafa verið fluttar í starf varaseðlabankastjóra en í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands sem samþykkt voru í júní síðastliðnum er kveðið á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn.

Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir hafa verið fluttar í starf varaseðlabankastjóra en í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands sem samþykkt voru í júní síðastliðnum er kveðið á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn.

Einn varaseðlabankastjóri á að leiða málefni sem varða peningastefnu, annar málefni er varða fjármálastöðugleika og sá þriðji málefni er varða fjármálaeftirlit. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins.

Rannveig var áður aðstoðarseðlabankastjóri og hóf störf í því starfi í júlí í fyrra. Unnur var áður forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Katrín Jakobsdóttir hefur flutt Rannveigu Sigurðardóttur í starf varaseðlabankastjóra peningastefnu frá og með 1. janúar 2020 með hliðsjón af bráðabirgðaákvæði hinna nýju laga. Í því kemur fram að embætti aðstoðarseðlabankastjóra verði lagt niður þegar lögin öðlast gildi um næstu áramót og að forsætisráðherra sé heimilt án auglýsingar að flytja núverandi aðstoðarseðlabankastjóra í nýtt embætti varaseðlabankastjóra.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur þá flutt Unni Gunnarsdóttur í starf varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits frá og með 1. janúar 2020 með hliðsjón af bráðabirgðaákvæði laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Þar kemur fram að embætti forstjóra Fjármálaeftirlitsins verði lagt niður þegar sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins öðlast gildi um næstu áramót sem og að fjármála- og efnahagsráðherra sé heimilt án auglýsingar að flytja forstjóra Fjármálaeftirlitsins í nýtt embætti varaseðlabankastjóra.