Eftir nokkra hækkun á verði Icelandair í fyrradag lækkuðu bréf félagsins að nýju í gær, eða um 3,25% í 70 milljóna króna viðskiptum. Gengi félagsins er nú 6,54 krónur á hvern hlut.

Eftir nokkra hækkun á verði Icelandair í fyrradag lækkuðu bréf félagsins að nýju í gær, eða um 3,25% í 70 milljóna króna viðskiptum. Gengi félagsins er nú 6,54 krónur á hvern hlut. Þónokkur lækkun varð einnig á verði bréfa Heimavalla í öllu minni viðskiptum, eða níu milljóna króna viðskiptum. Skeljungur og Marel lækkuðu einnig lítillega í Kauphöllinni í gær.

Það félag sem hækkaði mest í verði var upplýsingatæknifyrirtækið Origo, eða um 1,3% í 13 milljóna króna viðskiptum. Þá hækkaði fasteignafélagið Eik um 1,27% og TM um 1,11%.