Ólöf Svana Samúelsdóttir fæddist 9. maí 1944. Hún lést 6. september 2019.

Útför Svönu fór fram 16. september 2019.

Elsku Svana okkar. Við viljum þakka þér fyrir allar góðu stundirnar, stuðninginn og kærleikann sem þú alltaf veittir okkur. Við vorum svo óendanlega heppin að hafa þig sem þriðju ömmu okkar og erum þér ævinlega þakklát fyrir að sjá um okkur og elska sem þín eigin. Þú varst dásamleg fyrirmynd sem við munum alltaf líta upp til og muna í gegnum líf okkar. Við elskum þig og söknum þín endalaust.

Þín,

Kristín Hekla, Andrea, Össur Anton og Örvar Gauti.