Vinsæll Gabríel hefur nú þegar getið sér gott orð í tónlistarheiminum. Yfir milljón manns hlustar á hann í mánuði hverjum á Spotify. Á plötu sinni Absent Minded fagnar hann því að hann sé annars hugar, að eigin sögn.
Vinsæll Gabríel hefur nú þegar getið sér gott orð í tónlistarheiminum. Yfir milljón manns hlustar á hann í mánuði hverjum á Spotify. Á plötu sinni Absent Minded fagnar hann því að hann sé annars hugar, að eigin sögn. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Tónskáldið tvítuga Gabríel Örn Ólafsson, sem helst gengur undir listamannsnafninu Gabríel Ólafs, hefur á skömmum tíma fengið tæplega eina og hálfa milljón spilana á streymisveitunni Spotify.

Ragnhildur Þrastardóttir

ragnhildur@mbl.is

Tónskáldið tvítuga Gabríel Örn Ólafsson, sem helst gengur undir listamannsnafninu Gabríel Ólafs, hefur á skömmum tíma fengið tæplega eina og hálfa milljón spilana á streymisveitunni Spotify. Þá hlustar rúmlega hálf milljón manns á tónlist Gabríels á Spotify í mánuði hverjum. Lagið sem um ræðir heitir „Staircase Sonata“, eða Stigagangssónata, og er það af nýútgefinni plötu Gabríels, Absent Minded .

Gabríel er píanóleikari og hóf nám í píanóleik fimm ára gamall og fór að semja tólf ára gamall. „Þetta er náttúrulega mjög sérstök tilfinning. Ég bjóst ekki við þessu og sérstaklega ekki svona góðum viðtökum á Spotify. Það getur oft verið erfitt að safna áheyrendahópi á Spotify,“ segir Gabríel um viðbrögð sín við viðtökum heimsbyggðarinnar.

Spurður um ástæður vinsælda „Staircase Sonata“ segir Gabríel: „Maður getur í raun ekki haft áhrif á þessar spilanir en Spotify getur sjálft haft áhrif. Spotify er með deild sem velur lög inn á spilunarlista og velur hvort það vill ýta laginu upp eða ekki. Það setti lagið inn á ellefu spilunarlista sem það stjórnar sem er frábært og það sýnir að fólk þar hefur greinilega fílað lagið.“

Vinsælasta lagið lán í óláni

Lagið varð til, eins og fleiri góðar uppfinningar, út frá einskæru óhappi, að sögn Gabríels. „Ég vann að plötunni í fyrra í stúdíói sem er í kjallara. Einn daginn var brjálað veður í Kópavogi, Breiðholti og víðar. Það var svo mikil rigning að það flæddi inn í hús hjá fólki og það gerðist líka í stúdíóinu hjá mér. Þegar ég kom inn í stúdíó voru öll hljóðfærin mín, snúrur, hljóðnemar og fleira á bólakafi. Það var rosalegt áfall fyrir mig. Slökkviliðið keyrði á milli húsa og slökkviliðsmenn komu og báru píanóið mitt upp á stigagang. Þá hafði píanóið eiginlega verið á kafi í vatni. Þegar þetta var allt búið fór ég að spila á píanóið inni á stigagangi og ég fílaði hljómburðinn þar mjög vel. Þar samdi ég þetta lag og ákvað að nefna stykkið „Staircase Sonata“.“

Gabríel útskrifaðist frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2017 en á meðan hann var nemandi þar vann hann bæði lagasmíðakeppni skólans og lék frumsamið lag á píanó í skemmtiatriði skólans í Gettu betur á RÚV. Þannig uppgötvaði breska útgáfufyrirtækið One Little Indian Gabríel, sem skrifaði undir útgáfusamning hjá fyrirtækinu í fyrra. One Little Indian hefur gefið út tónlist eftir fleiri íslenska tónlistarmenn, til dæmis Björk, Ásgeir Trausta og Emilíönu Torrini.

Fagnar því að vera fjarhuga

Titillag plötunnar, „Absent Minded“, samdi Gabríel þegar hann var 14 ára, en það er einmitt sama lag og færði honum sigur í lagasmíðakeppni Menntaskólans við Hamrahlíð.

„Platan heitir Absent Minded því ég hef alltaf verið sagður frekar annars hugar. Á þessari plötu er ég í raun að fagna því að ég sé annars hugar, frekar en að horfa á það sem eitthvað neikvætt að láta sig dreyma og leyfa huganum að reika. Innblásturinn að lögunum er ótrúlega mismunandi. Hann er mjög persónulegur,“ segir Gabríel, sem sækir gjarnan innblástur í kvikmyndir og kvikmyndatónlist. „Þetta er í raun kvikmyndatónlist fyrir einhverja kvikmynd sem er ekki til.“

Gabríel tekur lagið „Cyclist Waltz“ sem dæmi. „Innblásturinn í því lagi kemur frá plakati sem ég er með inni í stúdíói. Það er frönsk auglýsing fyrir hjól án keðju. Hjólreiðamaðurinn er með yfirvaraskegg og mér fannst hann áhugaverður náungi svo ég ákvað að semja svona þema fyrir hann eins og oft er gert í kvikmyndum, þá eru stundum samin þemu fyrir hvern karakter.“

Listamennirnir 18-22 árs

Þó að Gabríel hafi samið, útsett og hljóðritað plötuna sjálfur er ekki þar með sagt að verkefnið sé einstaklingsverkefni.

„Einungis ungir Íslendingar spila með mér á þessari plötu og þeir eru allir vinir mínir, Andri Ólafsson úr Moses Hightower spilar reyndar á bassa en að honum frátöldum eru allir sem spila á plötunni á aldrinum 18 til 22 ára.“

Gabríel nefnir sérstaklega Ragnheiði Ingunni Jóhannsdóttur, sem er 18 gömul. Hún spilaði alla helstu fiðlukaflana á plötunni. Fleiri hljóðfæraleikarar sem skapa plötuna með Gabríel eru þau Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir, Sólveig Vaka Eyþórsdóttir, Anna Elísabet Sigurðardóttir, Rögnvaldur Borgþórsson, Magnús Jóhann Ragnarsson, Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir og Hjörtur Páll Eggertsson, sem Gabríel segir stórkostlegan einleikara. Bergur Þórisson, annar ungur Íslendingur, var upptökustjóri plötunnar.

Gabríel er strax farinn að vinna að næstu plötu.„Ég er mjög spenntur fyrir henni. Maður lærir mikið á fyrstu plötunni, sérstaklega ef maður reynir að gera allt sjálfur. Ég er eiginlega búinn að semja allt efni á hana og mun bráðlega hefja upptökur. Svo horfi ég líka fram á að fara að spila í Evrópu í kringum tónlistarhátíðina Iceland Airwaves svo ég er núna að vinna að því að skapa gott tónleikasett,“ segir Gabríel, sem spilar einmitt á Iceland Airwaves í nóvember.

Absent Minded er aðgengileg á helstu streymisveitum en einnig kemur hún út á vínyl og geisladiskum.