Þráinn Hallgrímsson
Þráinn Hallgrímsson
Eftir Þráin Hallgrímsson: "Forystumenn Eflingar hafa á þeim tíma sem liðinn er hagað sér gagnvart starfsmönnum eins og verstu atvinnurekendur. Þau hafa brotið öll mannleg siðalögmál í samskiptum við starfsmenn."

Á fjölmennum starfsmannafundi í maí 2018 tilkynnti Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn formaður, að mér yrði vikið úr starfi skrifstofustjóra Eflingar. Þó að þetta væri svívirðileg framkoma við mig lét ég nægja að mótmæla þessari framkomu formanns Eflingar á fundinum. Þetta var stór stund í lífi manns sem hafði ætíð lagt allan sinn metnað í starf sitt, að fá nú þessa köldu kveðju frammi fyrir nær öllum vinnufélögunum eftir hálfan fjórða áratug í starfi fyrir verkalýðshreyfinguna. Sólveig Anna fullyrti á þessum fundi að fleiri starfsmönnum yrði ekki sagt upp störfum.

Ég hef ekki lýst opinberlega skoðun minni á framkomu forystu Eflingar þó að oft hafi mér blöskrað framganga „hinnar nýju verkalýðsforystu“ eins og þau hafa sjálf kallað sig.

Nú keyrir um þverbak

Það sem knýr mig nú fram á ritvöllinn er sú atburðarás sem síðar hefur orðið og keyrir nú um þverbak.

Forystumenn Eflingar hafa á þeim tíma sem liðinn er hagað sér gagnvart starfsmönnum eins og verstu atvinnurekendur. Þau hafa brotið öll mannleg siðalögmál í samskiptum við starfsmenn.

Sólveig Anna og Viðar Þorsteinsson hófu ferilinn með því að afþakka aðstoð sem fyrrverandi formaður bauð þeim. Hann ráðlagði þeim að halda í starfi þeim starfsmönnum sem réðu yfir ómetanlegri reynslu og þekkingu á öllu starfi félagsins. Þau ráð voru höfð að engu. Harpa Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjaramála, sem hafði leitt kjarasamninga félagsins með forystumönnum Eflingar og Flóa um langt árabil, bauð fram aðstoð sína. Þau losuðu sig við hana. Hún leiðir nú samninga Reykjavíkurborgar. Þessir þrír einstaklingar sem best þekktu stjórnun kjarasamninga félagsins voru nú horfnir af vettvangi á örfáum dögum.

Næstu hreinsanir

Þá var komið að fjármálastjóra félagsins og bókara. Þær Kristjana Valgeirsdóttir fjármálastjóri og Elín Kjartansdóttir bókari höfðu báðar starfað lengi við fjárreiður og bókhald Eflingar og Kristjana hafði áður verið gjaldkeri eldri félaga og fylgt Dagsbrún í gegnum allar sameiningar til stofnunar Eflingar. Á öllum aðalfundum höfðu þær fengið mikið hrós fyrir stjórnun fjármála frá endurskoðendum félagsins enda fjárhagsstaða sjóða traust undirstaða réttinda félagsmanna. Til að losa sig við þessa starfsmenn var logið upp sökum á þær báðar, þær lagðar í einelti og sýnd vanvirðandi framkoma sem gerði þeim ókleift að starfa á vinnustaðnum. Eftir að hafa reynt að þrauka vikum saman í óásættanlegu andrúmslofti fóru þær báðar að ráðleggingum lækna sinna sem töldu að þetta ástand á skrifstofu Eflingar væri ógn við heilsu þeirra og líf. Síðan þá hafa þær báðar glímt við vanheilsu og þurft að leita læknis- og sálfræðiaðstoðar. Þær höfðu alla tíð beitt ýtrasta aðhaldi og eftirliti við alla fjármálagerninga. Í fjölmiðlum hefur komið fram að í þessu aðhaldi sé að leita skýringanna á framkomu forystumanna Eflingar.

Á eftir byltingunni kemur ógnarstjórn

Það er alkunna að öllum byltingum fylgir ógnarstjórn meðan nýir valdhafar eru að ná tökum á stöðunni. Hin „nýja stétt“ yfirmanna á Eflingu tamdi sér þann stjórnunarstíl að þeir sem andmæltu þeim eða reyndu að leiðbeina þeim féllu þegar í stað í ónáð. Annaðhvort var að hlýða yfirmönnum í einu og öllu eða taka pokann sinn. Þetta var þeim mun alvarlegra vegna þess að starfsmenn sem urðu fyrir þessari framkomu höfðu langa reynslu og víðtæka þekkingu af starfi fyrir félagið.

Fyrirsláttur til að reka starfsmann

Síðasti brottrekstur á Eflingu var með þeim hætti að starfsmanni var sagt upp störfum fyrirvaralaust. Honum var gert að mæta samstundis hjá framkvæmdastjóra þar sem fyrir var „fulltrúi starfsmanna“ sem framkvæmdastjóri hafði sjálfur valið til setu á fundinum. Ástæða uppsagnar var sögð skipulagsbreytingar. Fljótlega kom í ljós að það var fyrirsláttur enda ráðnir þrír nýir starfsmenn um svipað leyti og engin af verkefnum viðkomandi starfsmanns voru lögð niður. Kunnuglegt bragð stjórnenda fyrirtækja, ekki satt! Áminningarferill var ekki virtur í samræmi við ákvæði kjarasamnings. Í næsta herbergi beið einn lögmanna ASÍ. Þegar starfsmaðurinn neitaði að skrifa undir móttöku uppsagnarbréfs tók lögmaður ASÍ að sér að reyna að sannfæra starfsmanninn um að þessi framkoma framkvæmdastjórans væri í lagi. Enginn varði hagsmuni starfsmannsins á fundinum. Enginn var henni til aðstoðar. Lauk þessu þannig að starfsmanninum var fylgt úr húsi fyrir framan aðra starfsmenn og tekinn af henni lykill og bílakort. Starfsmanninum var síðan meinað að mæta á fyrrverandi vinnustað sinn á skrifstofutíma til að sækja persónulega muni sína.

Ég veit að það er erfitt fyrir lesendur að trúa þessu en svona eru vinnubrögð forystu Eflingar sem hefur það að meginhlutverki að verja launamenn, réttindi þeirra og stöðu. Þannig hafa þau hagað sér.

Málum gegn Eflingu fjölgar

Mál fjögurra starfsmanna eru nú í meðferð lögmanna sem starfsmenn hafa þurft að útvega sér til að verja hagsmuni sína. Þá eru einnig fleiri starfsmenn í langtíma fjarvistum sem hafa hrakist burt af vinnustaðnum vegna framkomu stjórnenda. Fram að valdatöku hinnar „nýju stéttar“ var það venja í félaginu að lögmaður félagsins gætti hagsmuna starfsmanna ef erfið ágreiningsmál komu upp. Lögmannsstofa úti í bæ svarar nú erindum starfsmanna. Ljóst er að lögmannsstofan úti í bæ hefur aðeins eitt hlutverk. Að hafna öllum kröfum starfsmanna um réttláta málsmeðferð og ásættanlegar niðurstöður í málum starfsmanna sem hraktir hafa verið úr störfum sínum eða í veikindaleyfi.

Lífskjaraskerðing í boði höfunda lífskjarasamningsins

Í málum þessara þriggja starfsmanna er ljóst að um gríðarlega lífskjaraskerðingu er að ræða. Sérstaklega er ámælisvert að tvær þeirra eru að nálgast lífeyristöku og því er um milljóna skerðingar á framtíðarkjörum að ræða. Starfsmenn hafa leitað til SGS og ASÍ með mál sín og þar hafa þau legið til afgreiðslu mánuðum saman óafgreidd.

Þeim er alveg sama um fólk

Það er afar mikilvægt að forystumenn stéttarfélaga búi yfir þekkingu á lögum og kjarasamningum, hafi ríka réttlætiskennd og beri virðingu fyrir skoðunum annarra. En allra mikilvægast er að koma vel fram við fólk. Stjórnendur verkalýðsfélaga eru fyrirmyndir stjórnenda fyrirtækja. Þeir verða að koma fram við starfsmenn sína eins og þeir vilja að aðrir stjórnendur komi fram við félagsmenn. Þar falla formaður Eflingar og framkvæmdastjóri á öllum prófum. Í rúmt ár hafa þau aldrei grennslast fyrir um heilsufar eða líðan starfsmanna í veikindaleyfum. Þeim virðist vera gersamlega sama um sína eigin starfsmenn. Allt samband við þau er í gegnum lögmannsstofu úti í bæ. Starfsmenn í veikindaleyfum hafa verið teknir út af starfsmannalistum og skorið á alla upplýsingagjöf til þeirra. Þá eru dæmi um að starfsmenn sem reynt hafa að koma upplýsingum til samstarfsmanna eða á vef félagsins hafi uppskorið það eitt að athugasemdir og erindi þeirra séu hreinsuð af spjallrásum og vef Eflingar.

Segja eitt en gera annað

Alls hafa forystumenn Eflingar nú rekið eða afþakkað störf a.m.k. sex starfsmanna og á annan tug starfsmanna hafa verið skráðir langtímaveikir eða veikir mánuðum saman á þessu tímabili. Þetta hefur aldrei þekkst á Eflingu fyrr en nú. Þá hefur forystan rekið úr starfi a.m.k einn starfsmann sem hún réði sjálf til að stjórna verkfallsmálum. Nú ræðir forysta félagsins hvort reka eigi stjórnarmann sem „lætur ekki að stjórn“. Þetta eru dæmi um hreinsanir og ógnarstjórn eftir byltingu.

Mín skoðun er sú að hin nýja stétt í forystu Eflingar stefni að því að hreinsa út alla starfsmenn og þekkingu sem kemur úr eldra umhverfi félagsins.

Brottrekstur og langtímaveikindi reyndra starfsmanna hlýtur að segja til sín fyrr en síðar í þjónustu við félagsmenn.

Líttu þér nær, Sólveig

Ég vitna í lokin í skrif formanns Eflingar, Sólveigar Önnu, í Fréttablaðinu 19. september sl. þar sem hún ræðir um meðferð á útlendingum. Þar segir hún að til viðbótar hinni ömurlegu hegðun atvinnurekenda bætist vanvirðandi framkoma og hótanir... séu notaðar til að kúga fólk til hlýðni. Ég tel að formaður Eflingar þurfi ekki að fara langt frá vinnustað sínum til að upplifa nákvæmlega sama hugarfar. Á því hafa burtreknir starfsmenn og fólk sem hrakið hefur verið í langtímaveikindi fengið að kenna. Líttu þér nær, Sólveig.

Höfundur er fv. skrifstofustjóri Eflingar.

Höf.: Þráin Hallgrímsson