Í Karíbahafi Ólafur segir að hann hefði tæpast fengið tækifæri til að ferðast til Curacao, Bonaire, Sint Maarten og Sint Eustatius hefðu verkefni tengd alþjóðlegu hjálpar- og björgunarstarfi ekki komið til.
Í Karíbahafi Ólafur segir að hann hefði tæpast fengið tækifæri til að ferðast til Curacao, Bonaire, Sint Maarten og Sint Eustatius hefðu verkefni tengd alþjóðlegu hjálpar- og björgunarstarfi ekki komið til.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ólafur Loftsson, fyrrverandi formaður Félags grunnskólakennara, hefur verið á ferð og flugi á framandi slóðum síðustu mánuði. Í gær var hann í Aserbaídsjan og í síðustu viku í Karíbahafi.

Ágúst Ingi Jónsson

aij@mbl.is

Ólafur Loftsson, fyrrverandi formaður Félags grunnskólakennara, hefur verið á ferð og flugi á framandi slóðum síðustu mánuði. Í gær var hann í Aserbaídsjan og í síðustu viku í Karíbahafi. Verkefni hans hafa snúið að starfi alþjóðlegra björgunarsveita.

Eftir kennaranám og kennslu, m.a. í Foldaskóla, varð Ólafur formaður Félags grunnskólakennara 2004 og gegndi því starfi til 2018. Samhliða starfaði hann lengi með björgunarsveitum, meðal annars alþjóðasveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar, og er nú í viðbragðsteymi á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þannig kynntist hann þessu alþjóðastarfi og frá því á síðasta ári hefur hann tekið að sér fleiri og fleiri verkefni á þessu sviði.

Aðstoðar ríkisstjórnir

Ólafur hefur komið að ýmsum verkefnum á vegum Sameinuðu þjóðanna og þá einkum fyrir UNDAC, sem er alþjóðleg viðbragðssveit á vegum SÞ. Sveitin aðstoðar eftir atvikum ríkisstjórnir við skipulag, björgun eða mat á aðstæðum. Í Aserbaídsjan er verið að undirbúa æfingu vegna hugsanlegs jarðskjálfta. Æfingin verður í nóvember og er Ólafur í þriggja manna undirbúningsteymi.

Í Karíbahafi fyrr í þessum mánuði var Ólafur í 15 manna æfingastjórn á vegum Evrópusambandsins. Verkefnið fólst í að æfa viðbrögð við fellibyljum og því sem fylgt getur í kjölfarið, sams konar atburðum og urðu á Bahamaeyjum nýlega. Á æfingunni kom Ólafur einnig að þjálfun rústabjörgunarsveita.

Hann segir að það sé alltaf á forræði ríkisstjórnar hvers lands að ákveða verksvið og umboð erlendra hjálparsveita. Undirbúningsstarf felist m.a. í að skilgreina hvað hver björgunarsveit eigi og megi gera og hvernig eigi að taka á móti alþjóðlegu hjálparstarfi. Samskipti við her, lögreglu, almannavarnir og björgunarsveitir þurfi að liggja fyrir og eins hvernig þessir aðilar starfi saman. Með þessum undirbúningi verði fólk betur búið undir að geta þegið aðstoð komi til voveiflegra atburða.

Spurður hvort verkefnum hans á þessum vettvangi hafi fjölgað síðustu mánuði segir Ólafur að verkefnin virðist koma í bylgjum. „Eftir að ég hætti hjá Félagi grunnskólakennara hef ég verið í lausamennsku og með aukinni reynslu hefur verkefnum fjölgað. Þeir eru fjölmargir og fjölbreyttir staðirnir sem ég hef heimsótt. Ég hefði tæpast nokkurn tímann komið til Curacao, Bonaire, Sint Maarten og Sint Eustatius í Karíbahafinu hefðu þessi verkefni ekki komið til.

Svona má áfram telja, ég hef fengið að fara til Ástralíu, Haítí, Bahamaeyja, Kostaríku og Filippseyja og er núna í Aserbaídsjan. Þó svo að undirtónninn sé mikil alvara er þetta um leið líka ævintýri og spennandi að kynnast öllum þessum stöðum og öllu þessu fólki sem maður hittir úti um allt,“ segir Ólafur að lokum.