Það er ekki létt starf að vera sjómaður en sem betur fer gefst stundum tækifæri til að slaka ögn á, hafa það huggulegt í káetunni, hvíla lúin bein og auma vöðva. Er ekkert sjálfsagðara en að sjómaðurinn búi sér þar til þægilegt athvarf og hafi allt það innan seilingar sem hjálpar honum að safna kröftum áður en djöfulgangurinn byrjar á ný. Hann þarf sína afþreyingu, sína ró, og ekkert sem bannar það að lyfta andanum upp í hæstu hæðir úti á sjó. Græju- og lífsstílssérfræðingur blaðsins fór á stúfana, og fann nokkra gripi sem er upplagt að henda í sjópokann fyrir næsta túr.
Ilmur frá Louis Vuitton
Franska tískuhúsið kynnti, ekki alls fyrir löngu, spennandi nýja línu af ilmi fyrir herra. Vitaskuld eru djúpar pælingar á bak við hvern ilm og þannig má líta á Ombre Nomade sem nokkurs konar óð til þeirra sem eru á sífelldu flakki og fá sjaldan að staldra við heima hjá sér. Kröftugur, þungur en um leið fágaður ilmur sem ætti að gleðja þann sem tekur á móti sjómanninum við bryggjuna.Hjá netverslun Louis Vuitton í Bretlandi kostar 100 ml flaskan 250 pund eða 39.000 kr.
Nýi iPhone-snjallsíminn
Mikið afskaplega breytir það miklu fyrir áhafnir skipa að geta tengst netinu. Ef ekki er siglt of langt frá landi má tengjast við netið yfir 3G- eða 4G-kerfið og á þeim skipum sem halda langt út á sjó er það orðið regla frekar en undantekning að sjómenn komist í netið með einhverjum hætti.Bæði er síminn ágætis afþreyingartæki og hægt að glápa á alls kyns efni uppi í koju eða skrafa við vini og kunningja á samfélagsmiðlunum. Nýi síminn frá Apple, iPhone 11 , er líka með fullkomna myndavél svo að hægt er að skrásetja líf skipsfélaganna og leyfa umheiminum að sjá þau uppátæki og ævintýri sem einkenna sjómannslífið.
Síminn er kominn í forsölu hjá íslenskum raftækjaverslunum og algengt verð frá frá 130 til 240 þús. kr.
Pelican-ferðataska
Eru ekki sjópokar farnir að verða svolítið úreltir? Þeir halda fatnaðinum þurrum – um það verður ekki deilt – en veita litla vörn gegn höggum og hnjaski. Nú þegar sjómenn eru hlaðnir alls kyns snjalltækjum er kannski ráð að skipta yfir í tösku sem bæði ver gegn vætu og þolir troðning og skelli.Bandaríska fyrirtækið Pelican er fyrir löngu orðið þekkt fyrir að framleiða einstaklega sterkbyggðar töskur. Lesendur þekkja þessar töskur úr hasarmyndum, þar sem þær eru oft notaðar sem skel utan um stórhættulegar sprengjur, skotvopn og dýrgripi. Í raunveruleikanum eru það viðbragðsaðilar og ljósmyndarar sem eru duglegastir að nota töskurnar enda varla hægt að finna öruggari stað fyrir viðkvæman lækningabúnað eða rándýra myndavél.
Pelican Air Travel Case er lausn fyrir þá sem eru mikið á ferðinni og nógu smá taska til að sleppa sem handfarangur hjá flestum flugfélögum. Í lokinu er poki með rennilás til að geyma smáhluti. Verðið er 310 dalir hjá Pelican.com
Snyrtivörutaska frá BMW
Auðvitað þarf að taka snyrtivörurnar með út á sjó og það verður að halda þeim í röð og reglu. En ekkert bannar að hafa snyrtivörutöskuna líflega og ekki verra ef hún minnir á uppáhaldsbílaframleiðandann. Hönnuðir BMW eiga heiðurinn af þessari vel heppnuðu tösku fyrir herra sem hugsa vel um útlitið. Litaval og útlit vísa í kraftmestu bíla fyrirtækisins, sem eru í essinu sínu á hraðbrautunum þar sem sleppa má öllum hestöflunum lausum. Taskan kostar 23 pund, um 3.500 kr., hjá shop.bmw.co.uk.