Umbúðir Kristján Geir, forstjóri Kassagerðar Reykjavíkur, segir lengi hafa verið leitað að endurvinnanlegum umbúðum til þess flytja út ferskan kældan fisk.
Umbúðir Kristján Geir, forstjóri Kassagerðar Reykjavíkur, segir lengi hafa verið leitað að endurvinnanlegum umbúðum til þess flytja út ferskan kældan fisk. — Morgunblaðið/RAX
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Lengi hefur verið leitað að kassa úr endurvinnanlegu efni undir ferskan fisk. Nú er slíkur pappakassi kominn í sölu og spurning hvort hann muni leysa frauðplastið af hólmi.

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Fyrr í þessum mánuði var kældur fiskur í fyrsta sinn sendur úr landi í endurvinnanlegum pappakassa frá Kassagerðinni. Kristján Geir Gunnarsson, forstjóri Kassagerðar Reykjavíkur, segir að unnið hafi verið að því um nokkurt skeið að þróa endurvinnanlegar umbúðir til útflutnings á fiski. „Við erum komin í samstarf við mjög öflugan aðila sem hefur lagt mikla peninga í vöruna og við höfum lagt töluvert í þetta líka,“ segir hann.

Ferskfiskkassinn, Eco Fish Box, er þróaður af Stora Enso í Svíþjóð í samstarfi við söluaðila á ýmsum mörkuðum, þar á meðal Kassagerð Reykjavíkur hér á Íslandi. Kassinn er umhverfisvænn og kemur í stað frauðplastkassa. Kassinn er vatnsheldur og er hönnun hans þannig að burðargeta hans er margföld á við hefðbundna pappakassa, að sögn Kristjáns Geirs. Hann segir kassann hafa verið í notkun í nokkur ár í Finnlandi með góðum árangri.

Frauðplast á undir högg að sækja

Fyrsti notandi kassanna er Premium of Iceland ehf. og er það í fyrsta sinn á Íslandi sem frauðkassa úr plasti er skipt út fyrir umhverfisvæna lausn úr pappa. „Þetta skref sem verið er að taka núna er gríðarlega stórt fyrir framtíðina og tilviljun að fyrsta framleiðsla af fiski sé að fara til kaupenda erlendis á meðan átakið Plastlaus september fer fram á Íslandi,“ segir Kristján Geir.

„Það er komið vel á annað ár sem við höfum verið að þróa kassann með þeim, með því að senda prufur og tala við viðskiptavini hér á Íslandi. Nú erum við komin á þann stað að við erum byrjuð að selja kassann. Við höfum hlustað á markaðinn og aðlagað vöruna þannig að hún uppfyllir ýtrustu kröfur,“ fullyrðir forstjórinn.

Spurður hvort fyrirtækið hafi fundið fyrir eftirspurn eftir umbúðum úr endurvinnanlegu efni segir hann svo vera. „Já, þetta er þekkt í þessum pappakassabransa að frauðplastið á alltaf meira og meira undir högg að sækja. Frauðplastið hefur þessa gríðarlega góðu eiginleika og uppfyllir miklar kröfur. Umbúðin viðheldur hitastigi, hún er sterk – það er hægt að stafla og þolir að vera í miklum hita í ákveðin tíma. Þetta eru algjörar öfga-umbúðir, en á sama tíma er þetta algjör umhverfisvá.“

Kristján Geir segir hafa verið mjög erfitt að finna pappakassa sem ber með sér sömu öflugu eiginleika og frauðplastið. „Þessi samstarfsaðili okkar er ekki eini aðilinn sem er að gera þetta – við vorum að reyna að gera þetta. En smátt og smátt verður krafan frá viðskiptavinum okkar viðskiptavina í þá átt að eitthvað komi í staðinn fyrir frauðplastið. Þá slá menn oft aðeins af kröfunum til kassans og kannski má segja að frauðplastkassinn sé of góður. Þú þarft ekki svona mikla vörn, því að gámaflutningar og flutningskeðjan sjálf er orðin það kæld að þú þarft ekki frauðplastið. En vegna þess að þetta er orðin svona keðja sem hefur þróast og þroskast í gegnum tíðina er erfitt að stoppa hana.“

Plastinu settar takmarkanir

Sífellt eru ríki að vinna í átt að regluverki sem dregur úr plastnotkun, að sögn Kristjáns Geirs. Bendir hann til þess að fyrir liggur tillaga í Frakklandi um að banna ákveðnar plastvörur árið 2020 og 2021. „Ef maður horfir á pólitíska umhverfið þá eru reglur að breytast, til dæmis hafa Frakkar verið mjög framalega í að banna plastpoka og plastumbúðir. Við vitum að innan ekkert allt of margra ára verður frauðplastkassinn bannaður. Þá verðum við að finna leið fyrir viðskiptavini okkar. Við finnum það sterkt, sérstaklega á þessu ári, að þeir eru orðnir mjög opnir fyrir því að prófa nýjungar,“ segir hann og bætir við að markmið fyrirtækisins sé að vera á undan þeirri þróun. „Við viljum vera forvirkir en ekki bara bregðast við.“

Pappakassinn sem um ræðir er flatur áður en hann er notaður til pökkunar og ber hann því með sér talsverða umhverfisvæna kosti auk þess sem hann tekur minna pláss við innflutning og við útflutning á fiski, staðhæfir forstjórinn. „Einn gámur af frauðplastkössum tekur álíka mikið pláss og sjö eða átta gámar af þessum kössum. Bara plássið í geymslu, flutningum og öðru slíku er rosalega misjafnt milli þessara umbúða. Kolefnissporið hlýtur að vega þungt í þessu líka.“

Til gámaflutninga

Spurður hvernig kassinn sé nýttur til útflutnings á ferskum fiski segir Kristján Geir kassann ekki hugsaðan fyrir útflutning á ferskum fiski með flugi. „Langstærsti hluti af kældum ferskum fiski fer í gámum og það er sú flutningsleið sem við einbeitum okkur að núna og við ætlum að horfa á flugið í næstu skrefum. Við erum meira að segja komin langt á leið í þróun á kassa sem þolir flug. En hvað varðar flutningsleiðina í gámi til viðskiptavina höfum við verið að senda til Frakklands og Ítalíu prufur með hitarita í fisknum og fylgjumst með. Niðurstöðurnar hafa sýnt að hitastigið breytist ekki.“

Hann segir vandamálið með frauðplastkassa vera fyrst og fremst að sá sem taki við honum hafi ekki annarra kosta völ en að urða hann, þar sem frauðplastið er óendurvinnanlegt. „Sá sem er endaviðskiptavinurinn situr uppi með frauðplastkassann, söluaðilinn á Íslandi sendir bara kassann og fær hann ekki til baka. Við finnum það – þar sem við höfum verið að gera prufur – að það er ekkert mál að koma pappakassanum í endurvinnslu. Viðskiptavinurinn hefur verið að kalla eftir þessari breytingu.“

87 ára reynsla af kassagerð

Kassagerð Reykjavíkur var stofnuð 1932 og framleiddi í fyrstu trékassa en seinna færðist framleiðslan yfir í pappakassa, svokallaða bylgjukassa. Fyrirtækið var sameinað Umbúðamiðstöðinni 2001 undir merkjum Kassagerðarinnar. Árið 2006 keypti Prentsmiðjan Oddi félagið og breikkaði þar með vöruval sitt. Oddi keypti síðar Plastprent, árið 2012, og gat í framhaldinu boðið viðskiptavinum upp á fjölbreyttara vöruval í pakkningalausnum. Félagið var á þessum tíma framleiðslufélag.

Í byrjun árs 2016 var ákveðið að Oddi myndi hætta framleiðslu á bylgjukössum og plasti og í stað þess hafinn innflutningur á umbúðum að utan. Framleiðsla prentsmiðju Odda hélt þó áfram. Þá var ákveðið að kljúfa upp rekstur Odda í byrjun þessa árs á þann veg að Kassagerð Reykjavíkur heldur utan um umbúðasölu en Prentsmiðjan Oddi helgar sig prentverki.