U19 Ída Marín Hermannsdóttir er á meðal leikmanna íslenska liðsins.
U19 Ída Marín Hermannsdóttir er á meðal leikmanna íslenska liðsins. — Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Ísland mætir Grikkjum á Víkingsvellinum í dag í fyrsta leiknum í undankeppni Evrópumóts kvenna 19 ára og yngri en einn af undanriðlum mótsins er að þessu sinni leikinn hér á landi.

Ísland mætir Grikkjum á Víkingsvellinum í dag í fyrsta leiknum í undankeppni Evrópumóts kvenna 19 ára og yngri en einn af undanriðlum mótsins er að þessu sinni leikinn hér á landi. Viðureign liðanna hefst klukkan 17 og á sama tíma mætast hin tvö liðin í riðlinum, Spánn og Kasakstan, á Hlíðarenda.

Tvö efstu lið riðilsins komast áfram í milliriðil, auk þess sem fjögur lið með bestan árangur í þriðja sæti í riðlunum tólf fara líka áfram. Tvær seinni umferðirnar fara síðan fram 5. og 8. október. vs@mbl.is