Berglind Rán Ólafsdóttir segir áhugaverða tíma framundan hjá ON.
Berglind Rán Ólafsdóttir segir áhugaverða tíma framundan hjá ON. — Morgunblaðið/Eggert
Óhætt er að segja að Berglindi Rán sé margt til lista lagt, en tók hún nýlega upp á því að læra að spila á slagverk og ganga til liðs við lúðrasveit. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin?

Óhætt er að segja að Berglindi Rán sé margt til lista lagt, en tók hún nýlega upp á því að læra að spila á slagverk og ganga til liðs við lúðrasveit.

Hverjar eru helstu áskoranirnar

í rekstrinum þessi misserin?

Það eru mjög áhugaverðir tímar hjá Orku náttúrunnar um þessar mundir af ýmsum ástæðum, bæði fyrir ON sem fyrirtæki og fyrir orkugeirann í heild sinni. Fram undan eru breytingar á rafmagnssölumarkaði sem verður gaman að taka þátt í, en þær munu meðal annars fela í sér að neytendur verða meðvitaðri um það hvaðan þeir kaupa rafmagnið fyrir heimili sín eða fyrirtæki.

Hver var síðasta ráðstefnan

sem þú sóttir?

Það eru ótrúlega margar góðar ráðstefnur í boði allan ársins hring á landinu, svo að oft er nauðsynlegt að forgangsraða. Nýlega fór ég á ráðstefnu sem heitir Bold Strategy Summit, þar sem verið var að fjalla um stefnumótun fyrirtækja. Þarna voru áhugaverðir fyrirlestrar með áherslu á innleiðingu stefnu, en það reynist fyrirtækjum oft auðveldara að búa til góðar stefnur en að innleiða þær þannig að þær verði hluti af menningunni.

Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag?

Ég myndi byrja daginn á því að setja lög sem fælu í sér að innan fárra ára væri hagkerfið á Íslandi orðið velsældarhagkerfi. Næsta verkefnið þennan dag væri að setja saman hóp vel valinna aðila sem fengi það verkefni að útfæra kerfið og tryggja að hópurinn hefði til þess fjármagn og aðgang að nauðsynlegri þekkingu. Næsta verkefni dagsins væri að breyta lögum um rammaáætlun þannig að unnið væri á grunni áætlunarinnar til lengri tíma frekar en að endurskoða tiltölulega oft með tilheyrandi flækju- og óvissustigi. Því næst myndi ég láta klára að móta aðferðafræðina við að meta samfélagsleg og efnahagsleg áhrif nýtingar virkjanakosta til þess að auðveldara sé að taka þá þætti inn í jöfnuna við þessa mikilvægu vinnu.

Hvernig heldurðu

þekkingu þinni við?

Um þessar mundir les ég helst bækur sem tengjast vinnunni, sem er ágæt leið til að halda huganum opnum. Bækurnar sem ég hef lesið nýverið eru af ýmsum toga, t.d. bók um samningatækni og bók um það hvernig fyrirtæki geta verið skipulögð á hátt sem í dag er óhefðbundinn, til þess að færa umboð til ákvarðanatöku frá æðstu stjórnendum til sérfræðinga og annars starfsfólks.

Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa?

Ef ég neyddist til að breyta til færi ég að sinna verkefnum sem fela í sér að breyta úrgangi í verðmæti. Það eru mörg tækifæri þarna og það er mjög mikilvægt fyrir okkur sem samfélag að ná að nýta þau sem fyrst, með áherslu á að byggja upp hringrásarhagkerfi.

Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu?

Færi ég í skóla núna myndi ég vinna verkefni sem fæli í sér að draga fram hagnýtar leiðir til þess að gera árangur fyrirtækja í samfélags- og umhverfismálum jafn mikilvægan og efnahagslegan árangur. Hvað gráðan myndi heita er spurning, þetta gæti t.d. verið hagfræðigráða en það er staðreynd að því fyrr sem við gerum grundvallarbreytingar á hagkerfinu okkar, þeim mun betur mun okkur ganga í baráttunni við hamfarahlýnun.

Hin hliðin

Menntun: B.Sc. í líffræði frá Háskóla Íslands 1997; M.Sc. í sameindalíffræði frá Háskóli Íslands 2001; MBA frá IESE í Barcelona 2004.

Störf: Ég vann við mannerfðafræðirannsóknir hjá Íslenskri erfðagreiningu frá 1997 til 2002. Eftir spænskunám, MBA-nám og verkefnavinnu fyrir General Electric Healthcare fór ég aftur til Íslenskrar erfðagreiningar í viðskiptaþróunarhlið fyrirtækisins frá 2006 til 2009. Þá fór ég til Medis, dótturfyrirtækis Actavis, í viðskiptaþróun í Austur-Evrópu frá 2009-2012 og þaðan til Landsvirkjunar, þar sem ég starfaði á markaðs- og viðskiptaþróunarsviði frá 2012 til 2017. Hjá Orku náttúrunnar var ég forstöðumaður fyrirtækjamarkaðar frá 2017 til 2018 og hef verið framkvæmdastjóri frá því í september 2018.

Áhugamál: Frítímanum vil ég helst eyða í góðum félagsskap fjölskyldu og vina þar sem góður matur og tónlist spila stórt hlutverk. Ég var mikið borgarbarn framan af en í dag veit ég fátt betra en að njóta náttúrunnar á Íslandi, stundum í þeim tilgangi að veiða mér til matar. Slagverksleikur er svo nýjasta áhugamálið, ég er í slagverksnámi, kláraði grunnstigið nýverið og byrjaði þá í Lúðrasveitinni Svaninum, þar sem heillandi heimur lúðrasveitanna opnaðist fyrir mér. Það vita það ekki öll, en það er mjög töff að vera í lúðrasveit!

Fjölskylduhagir: Maðurinn minn er Kristján Björn Þórðarson leiðsögumaður, við eigum þrjár dætur á aldrinum 14 til 24 ára og einn páfagauk.