Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði fjögur mörk þegar lið hans Barcelona vann fjórtán marka sigur gegn Granollers í spænsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi.
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði fjögur mörk þegar lið hans Barcelona vann fjórtán marka sigur gegn Granollers í spænsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi. Leiknum lauk með 38:24-sigri Barcelona en sigur spænsku meistaranna var aldrei í hættu.
Barcelona er í efsta sæti deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu fimm leiki sína, tveimur stigum meira en Cuenca, sem er í öðru sætinu. Er liðið langsigurstranglegast eins og undanfarin ár.