40 ára Gunnlaugur er Akureyringur og er rafmagnsverkfræðingur frá tækniháskólanum Chalmers í Gautaborg. Hann er sviðsstjóri iðnaðarsviðs hjá verkfræðistofunni Raftákn. Gunnlaugur er formaður Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri.

Maki : Eydís Unnur Jóhannsdóttir, f. 1980, hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Börn : Arna Sigríður, f. 2007, Karen Lilja, f. 2010, og Elvar Búi, f. 2016.

Foreldrar : Ólafur Búi Gunnlaugsson f. 1953, fv. starfsmaður Háskólans á Akureyri, og Agnes Jónsdóttir, f. 1959, skólaliði í Lundarskóla. Þau eru búsett á Akureyri.