Stefnir Kristjánsson og Sigrún Þóra Sveinsdóttir vilja nýta gervigreind við að uppgötva andleg vandamál.
Stefnir Kristjánsson og Sigrún Þóra Sveinsdóttir vilja nýta gervigreind við að uppgötva andleg vandamál. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sprotinn Proency þróar hugbúnað sem m.a. hjálpar stjórnendum að koma fyrr auga á merki um andleg vandamál og vanlíðan.

Allir sem mætt hafa í vinnuna illa fyrir kallaðir vita hversu miklu máli andleg vellíðan skiptir fyrir afköst og starfsánægju. Ekki er nóg með það, heldur þarf að gæta þess að kulnun nái ekki að skjóta rótum og smám saman spilla bæði andlegri og líkamlegri heilsu, allt þar til stoðirnar bresta með einum eða öðrum hætti.

Sigrún Þóra Sveinsdóttir segir hægara sagt en gert fyrir bæði stjórnendur og almenna starfsmenn að koma auga á einkenni andlegra vandamála á vinnustað, en til mikils sé að vinna að geta dregið upp sem gleggsta mynd af andlegri heilsu vinnustaðarins. „Það sem gerir þetta vandamál svo erfitt viðeignar er hvað andleg líðan fólks getur verið ósýnileg, og erfiðleikarnir koma ekki í ljós fyrr en þeir eru orðnir mun erfiðari við að eiga og fólk hreinlega dettur úr starfi.“

Sigrún, sem er klínískur sálfræðingur, setti sprotafyrirtækið Proency á laggirnar með manni sínum Stefni Húna Kristjánssyni verkfræðingi. Í stuttu máli notar Proency háþróaðan hugbúnað til að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að meta og bæta andlega heilsu starfsfólks, og nýtir til þess m.a. gervigreind og viðurkenndar sálfræðilegar aðferðir. Verkefnið tók þátt í Startup Reykjavík og munu prófanir á hugbúnaðinum hefjast innan skamms.

Inngrip fyrr

Hugmyndin kviknaði hjá Sigrúnu þegar hún starfaði sem lögreglusálfræðingur og sá hve miklu það gat breytt að bregðast fyrr við andlegum veikindum starfsfólks, og vandræðum á borð við kulnun, depurð og streitu. Á sama tíma kom Stefnir, sem þá var í námi við Tækniháskólann í Stokkhólmi, auga á hvernig hagnýta mætti tæknina með viðurkenndum sálfræðilegum aðferðum. „Með því að sjá sem fyrst að tekið er að halla undan fæti má grípa inn í og bæta andlega heilsu fólks áður en það verður að stóru vandamáli sem haft getur slæmar afleiðingar bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og fyrir vinnustaðinn.“

Hugbúnaður Proency virkar þannig að hver og einn starfsmaður fær endrum og sinnum meldingu um að svara nokkrum spurningum á sínu persónulega vefsvæði, sem nálgast má úr hvaða tölvu eða snjallsíma sem er. „Við byrjum á meðallöngum spurningalista en eftir það koma styttri spurningalistar til að fylgjast með líðan fólks frá einu tímabili til annars. Spurningarnar byggja á stöðluðum sálfræðilegum spurningalistum og leita m.a. að einkennum depurðar og kvíða, en skima líka eftir jákvæðum breytum eins og bjartsýni,“ útskýrir Sigrún.

Gervigreind metur svörin og sendir starfsmanni ábendingu ef eitthvað bendir til að hann hefði gott af að ræða málin við fagaðila. „Stjórnendur fá ekki að vita neitt um svör einstakra starfsmanna, og þannig er gengið frá hugbúnaðinum að meira að segja við sem sköffum þjónustuna höfum enga leið til að nálgast svörin. Aftur á móti geta stjórnendur fengið niðurstöður fyrir stærri hópa, s.s. allan vinnustaðinn eða tilteknar deildir þar sem þá vinna a.m.k. tíu manns.“

Virkar hópeflið?

Sigrún leggur á það áherslu að stíga þurfi varlega til jarðar enda vinnur Proency með viðkvæmar heilsufarsupplýsingar. „En með því að sjá þróunina hjá tíu manna hópi, sem gæti t.d. verið tiltekin deild, má koma auga á hættumerkin og mögulega grípa til aðgerða hja viðkomandi deild.“

Með hugbúnaðinum má ekki aðeins koma fyrr auga á möguleg vandamál, heldur líka byrja að greina með nákvæmum hætti hvað það er í vinnuumhverfinu sem getur valdið því að andleg líðan starfsmanna versnar eða skánar. „Ætti t.d. að vera hægt að sjá það svart á hvítu ef átaksverkefni eins og hópefli og námskeið skila tilætluðum árangri.“

Mikið er í húfi og bendir Sigrún á að hjá Íslendingum á aldrinum 18-40 ára séu geðraskanir helsta ástæðan fyrir örorku, en með því að greina einkenni röskunar fyrr og veita fólki þann stuðning sem það þarf mætti mögulega forða því að andlegir kvillar nái svo alvarlegu stigi að skerði getu fólks til að taka eðlilegan þátt í samfélagi og vinnumarkaði. „Þá má vísa í greiningu sem gerð var á vegum alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte, sem sýndi að verkefni sem fólst í andlegri heilsueflingu yfir netið skilaði fimm dala ávinningi fyrir hvern dal sem settur var í eflinguna,“ segir hún en auk þess að greina andlega líðan starfsfólks býður Proency upp á upplýsingar og æfingar sem eiga að hjálpa fólki að halda góðri andlegri heilsu.