Sex leikmenn kvennaliðs Þróttar Reykjavíkur í knattspyrnu hafa skrifað undir nýja samninga við félagið en Þróttur tryggði sér sigur í Inkasso-deildinni á dögunum og leikur í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.

Leikmennirnir sex eru: Linda Líf Boama, Andrea Rut Bjarnadóttir, Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir, Friðrika Arnardóttir og Jelena Tinna Kujundzic. Samningar þeirra við Þrótt gilda út keppnistímabilið 2021. sport@mbl.is