Umsóknir um vernd hér á landi, hælisumsóknir, í september voru orðnar um 90 talsins sl. föstudag. Umsóknir um vernd í ár voru orðnar nálægt 610 talsins og september er stærsti mánuður þessa árs hvað varðar fjölda umsókna um vernd.

Umsóknir um vernd hér á landi, hælisumsóknir, í september voru orðnar um 90 talsins sl. föstudag. Umsóknir um vernd í ár voru orðnar nálægt 610 talsins og september er stærsti mánuður þessa árs hvað varðar fjölda umsókna um vernd. Samkvæmt yfirliti sem Útlendingastofnun birti 15. september bárust 77 umsóknir í mars og 78 umsóknir í ágúst sl. Fjöldi umsókna var alls 522 fyrstu átta mánuði ársins.

Írakar voru fjölmennastir einstakra þjóðerna sem sóttu hér um vernd og fyrstu átta mánuði ársins bárust 87 umsóknir. Írakar hafa undanfarin ár verið stærsti hópur umsækjenda sem ekki koma frá öruggum upprunaríkjum. Hröð forgangsmeðferð hefur verið viðhöfð vegna umsókna frá öruggum ríkjum og hefur þeim fækkað.

Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar, sagði að fyrstu þrjá mánuði ársins hefðu yfir 70 umsóknir um vernd borist í hverjum mánuði. Heldur dró úr umsóknafjöldanum í apríl til júní en eftir það fóru umsóknir aftur yfir 70 á mánuði allt upp í um eða yfir 90. Oft hafa borist margar umsóknir um vernd frá október til desember.

Fyrstu átta mánuði ársins barst 61 umsókn um vernd frá Venesúelamönnum, þar af samtals 30 í júlí og ágúst. Þeim var öllum veitt vernd eða viðbótarvernd. Þórhildur sagði að umsóknirnar mætti rekja til ástandsins í Venesúela. Fjölgun umsókna þaðan væri ekki bundin við Ísland því nágrannalönd okkar hefðu einnig fundið fyrir fjölgun umsókna um vernd frá Venesúelamönnum.

Athygli vekur að það sem af er þessu ári hafa borist umsóknir frá Ástralíumanni, Breta og Bandaríkjamanni, einum af hverju þjóðerni. Mál þessara þriggja umsækjenda falla undir „önnur lok“ í tölfræði Útlendingastofnunar. Þórhildur sagði að í flestum málum sem falla í þann flokk hafi umsækjendur dregið umsóknir til baka.

Einnig endi þar mál þeirra sem hverfa frá umsókn án þess að draga hana til baka. Algengast er að umsækjendur frá upprunaríkjum sem skilgreind eru sem örugg dragi umsóknir sínar til baka. gudni@mbl.is