Stjórn Byggðastofnunar mun taka ákvörðun á fundi sínum um miðjan þennan mánuð um hvort stofnunin muni veita Ísfiski á Akranesi langtímafjármögnun. Verði svar Byggðastofnunar jákvætt verður unnt að afturkalla uppsagnir um það bil 50 starfsmanna sem fengu uppsagnarbréf í gær, en verði það neikvætt mun fólkið missa vinnuna og fyrirtækið hætta starfsemi.
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, sagði í samtali við mbl.is í gær að bæjarstjórnin öll hefði unnið að því af krafti undanfarnar vikur að tryggja fyrirtækinu langtímafjármögnun í gegnum Byggðastofnun. Hann sagði það hafa verið mikil vonbrigði og áfall að fyrirtækið hefði neyðst til þess að senda starfsfólki sínu uppsagnarbréf.
„Sú beiðni, samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum, verður tekin fyrir í stjórn Byggðastofnunar um miðjan þennan mánuð. Við erum að vonast til þess að þessar uppsagnir verði dregnar til baka, en það er mjög súrt að horfa til þess að fólkið hafi þurft að fá uppsagnarbréf og að fyrirtæki sem hefur verið í rekstri í tugi ára og gengið ágætlega en hefur ekki langtímafjármögnun þurfi að grípa til þessara aðgerða. Við erum að vonast til þess að þetta verði leyst innan tveggja vikna,“ sagði Sævar.