Ellen Ragnars stofnaði fyrirtækið árið 2017 og fór í Startup Reykjavík.
Ellen Ragnars stofnaði fyrirtækið árið 2017 og fór í Startup Reykjavík.
Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Ragnars veitir fólki stílistaráðgjöf, þjónustu sem hefur hingað til verið fremur óaðgengileg almenningi.

Ragnars er nýr vettvangur á netinu sem gerir fagfólki í stílistaheiminum kleift að koma þjónustu sinni á framfæri. Ellen Ragnars Sverrisdóttir er stofnandi samnefnds fyrirtækis sem sprottið er upp úr Startup Reykjavík viðskiptahraðlinum en Ragnars setti nýlega upp nýja útgáfu af lausninni á vefsíðunni Ragnars.co, fyrir Lundúnamarkað, fyrsta áfangastað fyrirtækisins, þar sem hægt er að velja um yfir 100 tegundir af þjónustu Ragnars. Íslendingar geta þó nýtt sér þjónustuna í gegnum netið eða þegar þeir heimsækja London en hægt er að panta tíma með stuttum fyrirvara.

Ellen segir starf persónulegra stílista ekki vera nýtt af nálinni en að þjónusta þeirra hafi hingað til ekki verið mjög aðgengileg almenningi

„Þetta hefur verið falin þjónusta ætluð efnameiri einstaklingum,“ segir Ellen sem sjálf hefur bakgrunn úr fjármála- og tískugeiranum. „Í fyrri störfum sem ég sinnti erlendis hef ég verið stöðugt á ferðalagi en svo kemur sá tími í lífinu þar sem maður eignast barn og hefur engan tíma og dettur í þetta týpíska fjölskyldumynstur. Þá skiptir ótrúlega miklu máli, sérstaklega í stórborgarvinnuumhverfi þar sem klæðaburður er oft mjög formlegur, að geta leitað sér aðstoðar.“

Markhópur fyrirtækisins er meðal annars fólk sem vinnur langa vinnudaga, en á svo í erfiðleikum með það að finna sér föt við hæfi.

„Við erum rétt að byrja í London og ætlum að þreifa okkur áfram og fara inn í fyrirtæki og bjóða þjónustuna til starfsmanna, sem þó geta einnig bókað sér tíma beint í gegnum vefsíðuna. Planið er svo að gera þetta að vettvangi fyrir alla helstu stílista, ljósmyndara og þá sem vinna í þessum stílistaheimi en þá um leið förum við inn í hið svokallaða gigghagkerfi (e. gig economy) og verðum bókunarvettvangur fyrir fagfólk í tískugeiranum, sem er gríðarlega vaxandi markaður.“