Á siglingu Bjarni Ólafsson AK.
Á siglingu Bjarni Ólafsson AK. — Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES, fyrir næsta ár er miðað við 20% aukningu í makrílveiðum. Litlar breytingar eru í ráðgjöf um kolmunna, en í norsk-íslenskri síld er ráðgjöfin um 11% samdrátt.

Í norsk-íslenska síldarstofninum hafa flestir árgangar verið lélegir í mörg ár en breyting hefur orðið á því árgangurinn frá 2016 lofar góðu. „Við höfum aldrei mælt eins mikið af þriggja ára síld í Barentshafi og gert var í maí síðastliðnum. Reikna má með þessum árgangi í veiðina að einhverju leyti á næsta ári en síðan af meiri krafti 2021,“ segir Guðmundur J. Óskarsson fiskifræðingur. ViðskiptaMogginn.