Sætisbræður. S-AV
Norður | |
♠ÁG7 | |
♥D102 | |
♦G953 | |
♣Á109 |
Vestur | Austur |
♠D3 | ♠K1086 |
♥Á95 | ♥63 |
♦42 | ♦D1086 |
♣K87542 | ♣G63 |
Suður | |
♠9542 | |
♥KG874 | |
♦ÁK7 | |
♣D |
Suður spilar 4♥.
Kannski gat Pólverjinn Jacek Kalita gert betur í spili gærdagsins, en hér stóð hann sig með mikilli prýði – og raunar betur en hinn hollenski sætisbróðir hans á hinu borðinu, Louk Verhees. Þeir spiluðu báðir 4♥.
Kalita fékk út ♦4, sem gat verið hvort heldur frá lengd eða hærra frá tvíspili. Hann setti upp gosann og drap drottningu austurs með ás. Fór svo strax í trompið. Vestur dúkkaði einu sinni, tók næsta slag á ♥Á og spilaði ♦2 – lítið, átta og kóngur. Sagnhafi getur nú byggt upp slag á ♦9 og ef hann fær annan á lauf er björninn unninn. Kalita spilaði ♣D og náði að fría þar slag án útgjalda. Þá þurfti bara að gefa slag á tígul og leggja upp.
Verhees fékk út lauf frá kóngnum, sem hann hleypti á drottninguna heima. Fljúgandi start, en vörnin trompaði út og fékk á endanum þrjá slagi á spaða í staðinn fyrir tígulslaginn. Einn niður.