Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Lántaki sem kaupir meðalstóra íbúð á höfuðborgarsvæðinu með 70% verðtryggðu láni borgar nú 10 þúsund krónum minna á mánuði í afborgun en hann gerði árið 2017.
Sá munur safnast saman og skilar um 120 þúsund krónum á ári.
Þetta er meðal þess sem má lesa úr útreikningum Guðmundar Sigfinnssonar, hagfræðings hjá Íbúðalánasjóði, fyrir Morgunblaðið.
Stuðst er við nokkrar forsendur sem eru útskýrðar í blaðinu í dag.
Elvar Orri Hreinsson, hagfræðingur hjá Greiningardeild Íslandsbanka, segir sjaldan eða aldrei hafa verið jafn hagstætt að taka íbúðalán.
„Vaxtaumhverfið og aukin samkeppni á markaðnum með innreið lífeyrissjóða gera það að verkum að þetta eru sögulega góðir tímar fyrir neytendur hvað varðar vexti í landinu,“ segir Elvar Orri.
Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, telur útlit fyrir frekari vaxtalækkanir. Vaxtakjörin á Íslandi hafi nálgast mikið kjörin annars staðar á Norðurlöndum.
Hærri laun, lægri vextir
» Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu er nú stöðugt.
» Laun hafa að meðaltali hækkað um 16,7% frá byrjun árs 2017 sem bætist við lægri afborganir af íbúðalánum.