Eva Longoria hugsar vel um útlitið.
Eva Longoria hugsar vel um útlitið. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þungur og þykkur farði er ekki til þess fallinn að framkalla það besta í húðinni. Miklar framfarir hafa átt sér stað í þróun farða og hefur aldrei verið jafnauðvelt að finna farða við sitt hæfi.

Þungur og þykkur farði er ekki til þess fallinn að framkalla það besta í húðinni. Miklar framfarir hafa átt sér stað í þróun farða og hefur aldrei verið jafnauðvelt að finna farða við sitt hæfi. Nýjustu farðarnir eru sérlega léttir, þunnir en öflugir svo það er kominn tími til að taka niður grímuna og fagna formúlum sem ýta undir náttúrulega fegurð okkar. Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com

Silkikennd áferð

Sensai Flawless Satin Foundation SPF 20 er léttur farði sem veitir húðinni miðlungsþekju og frískandi rakagjöf ásamt náttúrulegum ljóma. Formúlan inniheldur silkipúður sem hefur mýkjandi áhrif á húðina og sólarvörn SPF 20 til að vernda hana.

Púðuragnir sem

fullkomna húðina

Chanel Ultra Le Teint Velvet SPF 15 er olíulaus farði sem inniheldur Perfect Light Control Complex en það eru tvær gerðir af púðurögnum sem draga úr ásýnd svitaholna og misfellna í húðinni. Farðinn veitir miðlungsþekju og flauelskennda áferð.

Rakagefandi og náttúruleg innihaldsefni

Guerlain L'Essentiel Natural Glow Foundation SPF 20 inniheldur 97% náttúruleg innihaldsefni og veitir húðinni fallegan ljóma og ferskleika sem endist í allt að 16 klukkustundir. Þekjan er létt til miðlungs en auðvelt er að byggja hana upp. Formúlan býr sömuleiðis yfir húðbætandi eiginleikum, leyfir húðinni að anda, veitir henni raka og verndar gegn umhverfismengun.

Léttur en

langvarandi farði

Lancome Teint Idole Ultra Wear Nude SPF 19 er mjög léttur farði sem endist í allt að 24 klukkustundir á húðinni. Farðinn veitir létta þekju sem er náttúruleg og minnkar ásýnd svitahola. Formúlan er vatns- og svitaheld.

Farðinn sem ekki

þarf að púðra

Anastasia Beverly Hills Luminous Foundation veitir húðinni fallegan og náttúrulegan ljóma og situr hann vel á húðinni svo ekki þarf að púðra yfir hann. Formúlan veitir miðlungsþekju og og hentar öllum húðgerðum.

Nærandi formúla

í stiftformi

Bare Minerals Complexion Rescue Hydrating Foundation Stick SPF 25 byggist á nærandi innihaldsefnum á borð við rauða þörunga og andoxunarefni. Stiftið er sérlega hentugt í töskuna og auðvelt að bera það á sig en þú finnur samstundis fyrir auknum raka í húðinni.

Ferskur og

ljómandi farði

Yves Saint Laurent Touche Éclat Le Teint veitir húðinni einstakan ljóma, miðlungs- til mikla þekju sem þó kemur náttúrulega út. Formúlan er hönnuð til að vera mjög létt á húðinni og segir YSL að þetta sé eins og 8 klukkustunda svefn í farðaformi.

Tæknilegur farði með sólarvörn

Shiseido Synchro Skin Self-Refreshing Foundation SPF 30 er nýr farði frá japanska förðunarmerkinu en formúlan býr yfir sérstakri ActiveForce-tækni sem viðheldur ásýnd hans á húðinni í allt að 24 klukkustundir. Farðinn er olíulaus, þyngdarlaus, auðvelt að blanda og veitir miðlungsþekju. Hann hentar öllum húðgerðum, er ilmefnalaus og veitir húðinni vernd með SPF 30 sólarvörn.