[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þegar kólna tekur í veðri þornar húðin mikið í takt við veðrabreytingar. Til að koma í veg fyrir þetta er mikilvægt að nota næringarrík og rakagefandi krem. Við þurfum að hugsa vel um húðina í andlitinu en við megum ekki gleyma líkamanum.

Lait Corporel-líkamslínan frá Biotherm er ein vinsælasta líkamslína í heimi. Hún kom á markað árið 1972 og var algjör brautryðjandi á síni sviði með nærandi, mjólkurkenndar formúlur, ferskan appelsínuilm og mjúka áferð. Línan samanstendur nú af líkamskremum fyrir allar húðgerðir, sturtusápu, líkamsskrúbb, svitalyktareyði og handáburð. Allar vörurnar eru án parabena og eru samsettar af náttúrulegum innihaldsefnum, m.a. Life Plankton sem hefur mikla viðgerðareiginleika og heldur raka og næringu í húðinni.