Úrslitaeinvígi Hrund Skúladóttir og stöllur í Grindavík slógu liði Fjölnis við í úrslitaeinvígi 1. deildar og tryggðu sér þar með sæti í úrvalsdeildinni.
Úrslitaeinvígi Hrund Skúladóttir og stöllur í Grindavík slógu liði Fjölnis við í úrslitaeinvígi 1. deildar og tryggðu sér þar með sæti í úrvalsdeildinni. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Grindavík Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Ingibjörg Jakobsdóttir, leikmaður kvennaliðs Grindavíkur í körfuknattleik, er reyndasti leikmaður nýliðanna þrátt fyrir að vera fædd árið 1990.

Grindavík

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Ingibjörg Jakobsdóttir, leikmaður kvennaliðs Grindavíkur í körfuknattleik, er reyndasti leikmaður nýliðanna þrátt fyrir að vera fædd árið 1990. Grindavík féll úr úrvalsdeildinni vorið 2017 en tryggði sér sæti í efstu deild á nýjan leik eftir að hafa lagt Fjölni að velli í umspili síðasta vor.

„Tímabilið leggst mjög vel í okkur og við erum virkilega spenntar að byrja þetta. Við höfum í raun bara beðið eftir því að hefja leik, allt frá því að umspil 1. deildarinnar kláraðist í apríl.“

Grindavík hefur undanfarin tvö ár leikið í 1. deildinni og telur Ingibjörg að það hafi gert liðinu, sem og leikmönnum liðsins, mjög gott.

„Í hreinskilni sagt var þetta komið út í smá vitleysu hjá okkur, tímabilið áður en við féllum um deild, og að lokum varð fall svo bara niðurstaðan. Að sama skapi var þetta frábært tækifæri fyrir ungu stelpurnar til þess að sýna sig og sanna. Ég vona innilega að þessi dýrmæta reynsla sem þær öðluðust allar í fyrstu deildinni muni skila sér núna í vetur og ég hef fulla trú á því. Eins leiðinlegt og það var að falla um deild voru jákvæðir punktar í því líka.“

Stöðnun sem hafði áhrif

Grindvíkingar hafa ekki styrkt sig mikið í sumar en Bríet Sif Hinriksdóttir, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar, gekk til liðs við félagið.

„Að mínu mati þurftum við ekki marga leikmenn til þess að bæta liðið og stelpurnar sem hafa komið inn í þetta í sumar styrkja allar hópinn. Það var frábært fyrir okkur að fá Bríeti, bæði innan sem utan vallar. Hún er frábær í körfubolta og þá er hún einnig með mikla reynslu sem mun nýtast okkur vel. Kaninn okkar lítur mjög vel út og hún hefur aðlagast vel. Það er góð breidd í hópnum og stærðin er mátuleg ef svo má að orði komast. Auðvitað hefðum við viljað fá einn stóran leikmann undir körfuna en heilt yfir er ég mjög sátt við allt sem snýr að leikmannahópnum.“

Ingibjörg segir að myndast hafi ákveðin gjá í uppgangi félagsins síðastliðinn áratug.

„Þetta hefur verið upp og ofan undanfarin ár. Það hefur hins vegar verið haldið mjög vel utan um yngri flokkastarfið að undanförnu og við njótum góðs af því. Það kom ákveðin stöðnun í þetta en uppgangurinn er að taka aftur við sér núna. '90-árgangurinn var öflugur og nú er '00-árgangurinn að taka við af honum í rauninni en það kemur þarna tíu ára gat sem hafði áhrif á kvennaliðið. Þá hefur Jóhann Árni Ólafsson, þjálfari liðsins, gert mjög flotta hluti með liðið og hann er búinn að þjálfa margar af þessum stelpum lengi.“

Þrátt fyrir að Grindvíkingar séu nýliðar í deildinni er markið sett hátt suður með sjó.

„Einn af helstu styrkleikum okkar er sá að margir af leikmönnum liðsins hafa spilað mjög lengi saman. Það er hins vegar ekki mikil reynsla hjá þessum stelpum í efstu deild, en reynslan er mjög mikilvæg í þessu líka. Það er alltaf erfitt að vera nýliði í efstu deild og ætla sér að sigra heiminn. Við horfum raunsætt á hlutina og erum heiðarlegar með það. Valur og KR eru með svakalega hópa þannig að markmið okkar er einna helst að reyna að komast í úrslitakeppnina og við teljum okkur fullfærar um það.“

Margrét Sturlaugsdóttir um Grindavík

• Komnar aftur í efstu deild og ætla væntanlega að halda sér þar Jói Óla þjálfari er með mikla reynslu og þroska sem þarf til að leiða þetta unga lið; meðalaldurinn er rétt undir 20 ár en flestar eru með fína leikreynslu úr 1. deild og yngri landsliðum.

• Gætu ,,stolið“ sigrum vegna vanmats, þurfa að mæta allar með 100% einbeitingu til að knýja fram sigra og virkilega leggja sig fram við að taka réttar ákvarðanir.

• Ingibjörg Jakobs og Kamilah Jackson verða leiðtogarnir og ungu leikmennirnir stíga vonandi upp.

• Spennandi leikmenn eru að koma upp og verður áhugavert að fylgjast með þeim og þá sérstaklega Elísabetu Ýri Ægisdóttur, sem er 16 ára og mikið efni.

• Þori að lofa að þetta er eina liðið með þríbura að spila saman á íslandi, en Lucic Jónsdætur eru allar efnilegar.

• Bríet kom frá Stjörnunni, þar sem hún spilaði gríðarlega vel í fyrra og þá sérstaklega framan að vetri. Hún mun láta að sér kveða í vetur og hjálpar að mynda ógn fyrir utan þriggja stiga línuna.

Lið Grindavíkur 2019-20

BAKVERÐIR:

Anna Margrét Lucic Jónsdóttir

Bríet Sif Hinriksdóttir

Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir

Ólöf Rún Óladóttir

Sædís Gunnarsdóttir

Telma Bjarkardóttir

Viktoría Rós Horne

FRAMHERJAR:

Andra Björk Gunnarsdóttir

Arna Sif Elíasdóttir

Elísabet María Magnúsdóttir

Elísabeth Ýr Ægisdóttir

Hrund Skúladóttir

Ingibjörg Jakobsdóttir

Thea Olafía Lucic Jónsdóttir

MIÐHERJAR:

Kamilah Jackson

Sigrún Elfa Ágústsdóttir

Þjálfari: Jóhann Árni Ólafsson.

Aðstoðarþjálfari : Nökkvi Már Jónsson.

Árangur 2018-19: Sigurvegari 1. deildar.

Íslandsmeistarar: 1997.

Bikarmeistarar: 2008 og 2015.

*Grindavík tapaði fyrir Val á heimavelli í fyrstu umferð, 96:49. Liðið sækir Skallagrím heim í 2. umferð næsta miðvikudagskvöld og tekur svo á móti Haukum í næsta heimaleik, 16. október.

Breytingar á liði Grindavíkur

KOMNAR

Bríet Sif Hinriksdóttir frá Stjörnunni

Kamilah Jackson frá Espoo Basket Team (Finnlandi)

FARNAR

Hannah Cook , óvíst