Umferð Hægt hefur á aukningunni.
Umferð Hægt hefur á aukningunni.
Mjög lítil aukning varð á umferð ökutækja um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum mánuði eða 0,3%.

Mjög lítil aukning varð á umferð ökutækja um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum mánuði eða 0,3%. Fram kemur í nýrri samantekt Vegagerðarinnar að þessi litla aukning kemur í kjölfarið á lítilli aukningu í ágúst sem var 0,1% hærri. ,,Þessi aukning núna er í raun borin uppi af einu mælisniði ofan Ártúnsbrekku en aukningin þar reyndist vera 2,1%. 1,4% samdráttur varð í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi en engin aukning á mælisniði á Reykjanesbraut,“ segir í frétt Vegagerðarinnar.

Í ljós kom að umferðin yfir mælisniðin þrjú á höfuðborgarsvæðinu hefur nú aukist um 1,1% frá áramótum og er það nákvæmlega sama staða og var árið 2012, miðað við árstíma. Í september jókst umferðin mest á mánudögum eða um 0,8% en dróst mest saman á sunnudögum eða um 2,2%. Umferðin á bíllausa deginum 22. sept. var 3,1% undir meðalumferð sunnudaga í mánuðinum. Umferðardeild Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að umferðaraukning verði frá því að vera engin og upp í 1,5% í árslok.