Penélope Cruz og Kate Winslet nota báðar þetta kraftmikla serum.
Penélope Cruz og Kate Winslet nota báðar þetta kraftmikla serum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Árið 2009 kom Advanced Génifique-serumið fyrst á markað með byltingarkennda formúlu sem innihélt góðgerla. Nú 10 árum seinna taka vísindin næsta skref með nýjum lausnum fyrir heilbrigða húð.

Á síðustu árum hafa konur sýnt innihaldsefnum meiri og meiri áhuga og vilja vörur sem styrkja og virða húðina. Fólk veit meira í dag en fyrir tíu árum hvað virkar fyrir heilbrigði húðarinnar. Húðin á fólki er lifandi vistkerfi með milljörðum gagnlegra örvera sem kallast „skin microbiome“.

En hvers vegna skipta örverur húðina okkar svona miklu máli? Þegar örverurnar eru í jafnvægi er húðin betur í stakk búin til að verja sig og styrkja. Næringarefnin sem nýtast þessum örverum kallast „pre and probiotics“. Nýja Advanced Génifique er með sjö mismunandi „pre and probiotic“ sem sérstaklega voru valin og umbreytt til að skila nauðsynlegum efnum til húðarinnar og örveranna.

Génifique-serumið hentar öllum kynþáttum, öllum aldri og öllum húðgerðum – þurri húð, blandaðri/normal og feitri húð. Áferðin er létt og fersk og gengur hratt inn í húðina. Serumið er mikilvægt upphafsskref í kremrútínu, bæði kvölds og morgna, og vinnur vel með hvaða kremlínu sem er. Það er stútfullt af góðgerlum og hyaluronic-sýru sem bæta ástand húðarinnar, hún endurheimtir ljóma, fínar línur minnka og húðlitur og áferð húðar verða jafnari.