Elizabeth, systir Reniu Spiegel, með dóttur sinni Alexöndru og kvikmyndagerðarmanninum Tomasz Magierski við sýningu á heimildarmynd Magierski um Reniu, höfund dagbókar sem lýsir lífi ungs gyðings á tímum helfararinnar.
Elizabeth, systir Reniu Spiegel, með dóttur sinni Alexöndru og kvikmyndagerðarmanninum Tomasz Magierski við sýningu á heimildarmynd Magierski um Reniu, höfund dagbókar sem lýsir lífi ungs gyðings á tímum helfararinnar. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Dagbók sem segir frá upplifunum pólskrar táningsstúlku af gyðingaættum á tímum helfararinnar kom út á ensku í síðasta mánuði. Er dagbókinni líkt við dagbók Önnu Frank en bókin var geymd í öryggishólfi í banka í áraraðir. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is

Renia Spiegel var 15 ára hinn 31. janúar 1939 þegar hún hóf að skrifa um líf sitt. Hún var gyðingur og bjó hjá ömmu sinni í Przemysl í Póllandi. Renia saknaði móður sinnar sem bjó í Varsjá ásamt yngri systur Reniu, Ariönu, saknaði föður síns og mest af öllu saknaði hún gamla heimilis fjölskyldunnar við ána Dnjestr. Móðir þeirra systra hafði flust til Varsjár ásamt Ariönu þar sem Ariana ætlaði sér að verða kvikmyndastjarna.

„Ég vil vin. Einhvern sem ég get spjallað við um hversdagslegar áhyggjur mínar og gleðistundir. Einhvern sem getur fundið það sem ég finn, trúað því sem ég segi og aldrei sagt frá leyndarmálum mínum. Engin manneskja gæti nokkurn tímann orðið slíkur vinur,“ sagði Renia í fyrstu dagbókarskrifum sínum.

Þetta sama ár braust út stríð í Evrópu. Nasistar og Sovétmenn skiptu upp Póllandi og lenti móðir Reniu undir yfirráðum nasista í Varsjá en Renia og systir hennar, sem var í heimsókn í Przemysl, sátu fastar undir yfirráðum Sovétmanna.

Anna Frank okkar tíma

Dagbókin, sem nýlega komst aftur á yfirborðið eftir að hafa verið gleymd í mörg ár, var gefin út á ensku hinn 24. september síðastliðinn. Er hún talin einkar vel skrifuð og fylgir ungri stúlku þar sem hún fótar sig í lífinu með stríð og gyðingaofsóknir allt um kring. Allar 700 blaðsíður dagbókarinnar varðveittust í gegnum árin.

Í bókinni má finna fyndnar sögur um vini Reniu, fallegar lýsingar á heiminum í kringum hana og þá talar Renia opiskátt um samband sitt við kærasta sinn. Einnig má sjá hvernig átök þjóða í allsherjarstríði birtast stúlku sem er að taka sín fyrstu skref sem sjálfstæður einstaklingur.

Líkindi eru með dagbókarskrifum Reniu og dagbók Önnu Frank sem er ein frægasta frásögn gyðings úr seinni heimsstyrjöldinni. Renia var þó eldri og skrif hennar nokkuð fágaðari en hún samdi reglulega ljóð og lét fylgja í dagbókinni. Auk þess lifði Renia ekki í felum nema rétt undir lok dagbókarskrifanna ólíkt Önnu Frank. Gefur frásögn Reniu innsýn í líf gyðings í seinni heimsstyrjöldinni og minnir okkur á að hvert fórnarlamb helfararinnar á sér einstaka sögu sem oft gleymist þegar um er að ræða eins fjölmennan hóp og raun ber vitni.

New York Times hefur eftir Alexöndru Garbarini, prófessor og sagnfræðingi sem sérhæfir sig í dagbókum frá helförinni, að dagbókin sé einstök því Renia upplifði bæði stjórn Sovétmanna og nasista. „Dagbókin sýnir líf unglingsstúlku fyrir stríðið, eftir að það hefst og þar til hún er látin færa sig yfir í gettóið. Hún er svo sannarlega merkileg.“

Þrjú skot, þrjú líf

Nasistar, undir stjórn Hitlers, réðust inn í Sovétríkin 1942 og tóku þar með yfir þann hluta Póllands þar sem Renia bjó. Stuttu áður kynntist hún strák að nafni Zygmunt Schwarzer og urðu þau ástfangin. Í júní, tveimur vikum fyrir 18 ára afmæli Reniu, segist hún hafa fundið fyrir alsælu með Zygmunt í fyrsta skipti.

Alsælan varði stutt enda tóku nasistar yfir Przemysl og var Renia, ásamt systur sinni og 20 þúsund gyðingum, neydd inn í gettóið í borginni. Zygmunt tókst að smygla þeim út úr gettóinu áður en nasistar hófu að senda fólk í útrýmingarbúðir og faldi Reniu ásamt foreldrum sínum á háalofti frænda síns en Ariana dvaldist hjá annarri kristinni fjölskyldu.

30. júlí fundu nasistar felustað Reniu og foreldra Zygmunts og tóku þau öll af lífi. Zygmunt sem hafði tekið sér dagbókina til geymslu þegar Renia fór í felur skrifaði síðustu færslu bókarinnar og lýsti þar með dauða höfundarins. „Þrjú skot! Þrjú líf týnd! Allt sem ég heyri eru skot, skot.“

Af hverju leyfði hann mér að lifa?

Ariana komst að lokum til móður sinnar í Varsjá sem hélt í þeim lífinu og kom þeim til Bandaríkjanna þegar stríðinu lauk. Þá höfðu þær báðar tekið kaþólska trú til að lifa af ofsóknirnar í stríðinu. Ariana tók við skírn sína nafnið Elzbieta og síðar Elizabeth þegar komið var vestur yfir haf. Hræðslan við að upp kæmist um uppruna þeirra mæðgna var Elizabeth og móður hennar svo sterk að þær sögðu engum manni frá uppruna sínum.

Á sjötta áratugnum dúkkaði Zygmunt einn daginn upp hjá mæðgunum með dagbókina. Hann hafði hlotið þau ömurlegu örlög að vera sendur til Auschwitz-vinnubúðanna. Þar var hann skoðaður af hinum alræmda lækni Josef Mengele en leyft að lifa en engum er ljóst hvernig hann hafði uppi á bókinni eftir að fangar vinnubúðanna voru frelsaðir undir lok stríðsins. Zygmunt eignaðist konu og börn en gleymdi aldrei Reniu, gerði afrit af dagbók hennar og fór reglulega niður í kjallara til að lesa hana.

Að sögn sonar hans var hann fyrst um sinn lífsglaður maður en þegar á leið herjuðu minningarnar á hann; spurði sig í sífellu af hverju honum var leyft að lifa í Auschwitz. Zygmunt Schwarzer dó 1992 og því verður að öllum líkindum aldrei vitað hvernig hann fékk bókina í sínar hendur aftur.

Ástfanginn við lesturinn

Þegar móðir Elizabeth dó fékk hún dagbók systur sinnar í hendurnar. Hún þorði hins vegar ekki að lesa bókina og kom henni því fyrir í öryggishólfi. Það var ekki fyrr en 2012 sem dóttir Elizabeth, Alexandra, forvitin um sögu systur móður sinnar, las dagbókina. Hún var orðin 12 ára þegar móðir hennar sagði henni og bróður hennar frá uppruna sínum og vildi nú vita meira. Hún fékk námsmann í Póllandi til að þýða bókina á ensku fyrir sig og árið 2014 fékk hún kvikmyndagerðarmanninn Tomasz Magierski til að lesa hana og mögulega fá einhvern til að gefa hana út.

Magierski gerði gott betur og gerði heimildarmynd um sögu Reniu sem kom út í september. „Ég varð ástfanginn af Reniu,“ sagði Magierski við Smithsonian í fyrra.