Liza Minnelli segir að atriði í kvikmynd um móður hennar geti sært.
Liza Minnelli segir að atriði í kvikmynd um móður hennar geti sært. — REUTERS
Kvikmyndir Liza Minnelli er alveg hörð á því að ætla ekki að sjá kvikmyndina Judy með Renee Zellweger í hlutverki móður Lizu, Judy Garland, en kvikmyndin, sem fjallar um líf Judy Garland, hefur fengið afar góða dóma.

Minnelli hefur áður gefið það út að hún muni aldrei horfa á kvikmyndir sem fjalla um lífshlaup móður hennar eða hennar sjálfrar þar sem atriði í kvikmyndum um hennar æsku gætu sært.

Þá segir Liza Minnelli einnig að vilji fólk minnast móður hennar heitinnar og vita meira um hana geti það einfaldlega hlustað á plötur Judy Garland og horft á kvikmyndirnar sem hún lék í sjálf á sínum tíma.