Sýning Börn og unglingar hafa fengið sinn sess í afmælisdagskrá Vestmannaeyjakaupstaðar á árinu og hér er verið að opna sýningu á verkum grunnskólanema. Afmælishátíðin heldur áfram og næsti hápunktur er safnahelgin.
Sýning Börn og unglingar hafa fengið sinn sess í afmælisdagskrá Vestmannaeyjakaupstaðar á árinu og hér er verið að opna sýningu á verkum grunnskólanema. Afmælishátíðin heldur áfram og næsti hápunktur er safnahelgin. — Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Úr bæjarlífinu Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Á þessu ári hafa Vestmannaeyingar fagnað 100 ára kaupstaðarafmæli og hefur dagskrá verið í gangi allt árið.

Úr bæjarlífinu

Ómar Garðarsson

Vestmannaeyjum

Á þessu ári hafa Vestmannaeyingar fagnað 100 ára kaupstaðarafmæli og hefur dagskrá verið í gangi allt árið. Hápunkti náði hátíðin fyrstu helgina í júlí þegar Eyjafólk fagnaði lokum Heimaeyjargossins sem var blásið af þann 3. júlí 1973. Veðrið lék við bæjarbúa og gesti þessa helgi, sólskin, logn og hiti.

Og úr miklu var að velja því samtals voru í boði 42 viðburðir, myndlistarsýningar, tónleikar og skemmtanir fyrir börn og fullorðna. Allt var vel sótt og var listafólk mjög ánægt með viðtökur.

Aðalhátíðisdagurinn, fimmti júlí, rann upp bjartur og fagur og afmælishátíðin á Skansinum dró að sér fjölda manns. Heiðursgestir voru Eliza Reed forsetafrú, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. Fluttu þau öll ávarp ásamt Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra og Arnari Sigurmundssyni, fulltrúa afmælisnefndar.

Erfitt er að gera sér grein fyrir hvað margir heimsóttu Vestmannaeyjar þessa helgi en þeir skiptu þúsundum. Mikið brottfluttir Eyjamenn en líka var áberandi hvað margir mættu sem engin tengsl hafa við Vestmannaeyjar. Allt fór þetta fólk héðan með góðar endurminningar og jákvæða mynd af Vestmannaeyjum.

Afmælishátíðin heldur svo áfram og nú eru vikulegar sýningar ljósmyndara í Einarsstofu sem vakið hafa mikla athygli. Í dag sýna Sif Sigtryggsdóttir og Addi í London myndir sínar. Halda sýningarnar áfram til áramóta. Næsti hápunktur er svo safnahelgin, aðra helgi í nóvember þar sem í boði verða margir menningarviðburðir.

Loðnubresturinn síðasta vetur var mikið áfall fyrir Vestmannaeyjar og verður, þó makrílveiðar hafi gengið vel og vel líti út með síldina. Vestmannaeyjar eru sterkar í uppsjávarfiski og stærsta verstöðin í botnfiski. Sennilega er loðnan mikilvægust fyrir Vestmannaeyjar og finnur allt samfélagið fyrir því þegar hún bregst.

Nýr Herjólfur er stærsta afmælisgjöf Vestmannaeyinga en langþráður draumur þeirra um nýja ferju varð að veruleika þegar nýr Herjólfur, sá fjórði í röðinni, lagðist að bryggju í Friðarhöfn laugardaginn 15. júní.

Það mun reyna á hann þegar fer að hausta og veður verða stríð. Hann hentar betur í Landeyjahöfn en sá gamli en næstu skref eru endurbætur á höfninni sjálfri. Fyrr verður ekki hægt að tala um Landeyjahöfn sem heilsárshöfn. Er það krafa bæjarstjórnar Vestmannaeyja.

Nýtt skip útgerðarfélagsins Bergs-Hugins, dótturfélags Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, Vestmannaey VE, kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum þann 17. júlí og var vel tekið á móti skipinu sem má segja að sé ein af afmælisgjöfunum. Það sama má segja um nýja Bergey VE sem var afhent í Noregi á þriðjudaginn og er nú á leið til landsins.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Hallgrímur Steinsson, f.h. Fiskeldis Vestmannaeyja, undirrituðu nýlega viljayfirlýsingu um fiskeldisstöð á landi í Vestmannaeyjum. Hlutur bæjarins er ráðgjöf og breytingar á deiliskipulagi.

Ekkert er betra en hreyfing til að halda heilsu. Það veit dr. Janus Guðlaugsson öðrum betur. Hann hefur í samvinnu við Vestmannaeyjabæ hrundið af stað verkefninu, Fjölþætt heilsuefling 65+. Markmiðið er að gera fólk hæfara til að takast á við breytingar sem fylgja hækkandi aldri. Bæði með hreyfingu og hollu mataræði. Áhuginn fór fram úr björtustu vonum og taka um 90 Eyjamenn og -konur þátt í verkefninu og er fólkið mjög ánægt.