Skip Innflutningur var mikill.
Skip Innflutningur var mikill.
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir september 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 50,9 milljörðum króna í mánuðinum og fob verðmæti vöruinnflutnings 68,0 milljörðum króna.

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir september 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 50,9 milljörðum króna í mánuðinum og fob verðmæti vöruinnflutnings 68,0 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,1 milljarð króna.

Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Í september 2018 voru vöruviðskiptin til samanburðar óhagstæð um 14,3 milljarða króna á gengi hvors árs. Í september 2019 var verðmæti vöruútflutnings 2,1 milljarði króna hærra en í september 2018. Verðmæti vöruinnflutnings í september 2019 var 5,0 milljörðum króna hærra en í september 2018.