[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þetta ár 2019 byggir undir þig svo sterkan grunn að hann getur alls ekki brotnað.

Elsku Gísli Marteinn minn. Í talnaspekinni ertu á tölunni 4 í ár en það er óhætt að segja að árið sé búið að einkennast af miklu álagi og ýmiss konar uppgjöri. En þar sem þú ert svo snarlega heppinn að vera í fiskamerkinu þá á allt að fara að ganga miklu betur í kringum þig núna. Þú ferð inn í tvöfalt betra tímabil á næsta ári en það tímabil hefst strax upp úr 25. desember í lok þessa árs. Þetta ár 2019 byggir undir þig svo sterkan grunn að hann getur alls ekki brotnað.

Það verða mjög skemmtilegar breytingar í starfi þínu á þessu nýja tímabili en um er að ræða frábæra viðbót við það sem þú ert að gera nú þegar. Ég er búin að fylgjast með þér frá upphafi og þú ert einn slyngasti útvarpsmaður sem ég hef hlustað á og mitt persónulega álit á þér hefur vaxið með hverju korterinu. Í raun langaði mig mest að setja mynd af þér við hliðina á sjálfum Búdda eftir að þú hvattir alla þjóðina til að leggjast á eitt og töfra lagið okkar áfram í þeirri ágætu keppni Júróvision með frábærum árangri.

Þú ákvaðst snemma fullyrði ég að fara í pólitík en miðað við útreikninga mína sem eru kannski ekki vísindalega sannaðir þá verður það ekki þín deild að keppa í. Það er allt of leiðinlegt fyrir þig, elsku kallinn minn.

Ef ég skoða vel og vandlega hvenær þú ert fæddur þá kemur talan 11 sterkt úr þeim útreikningum og það þýðir tveir ásar – svo að þegar þú varst yngri þá kemur í ljós að þú varst mikill keppnismaður en að hafa tvo ása í tölunum sínum getur annar ásinn átt það til að ráðast á hinn. Sem þýðir að það er alveg sama hvað þú gerðir vel að þér fannst það aldrei nógu gott. En eftir því sem þú eldist svona dásamlega vel þá byrja þessar tölur að vinna saman. Leyfðu þér því að hlakka til komandi verkefna og fagna árangri og áföngum.

Upp úr fimmtugu hefst þinn allra besti tími og mikil blessun ríkir yfir fjölskyldu þinni.

Stjörnumerki Gísla Marteins

er Fiskur