Pamela De Sensi
Pamela De Sensi
Flautuleikararnir Karen Erla Karólínudóttir og Pamela De Sensi og píanóleikarinn Steingrímur Þórhallsson koma fram á hádegistónleikum í Listasafni Íslands í dag kl. 12.10.
Flautuleikararnir Karen Erla Karólínudóttir og Pamela De Sensi og píanóleikarinn Steingrímur Þórhallsson koma fram á hádegistónleikum í Listasafni Íslands í dag kl. 12.10. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð safnsins og Íslenska flautukórsins sem hefur það markmið að gefa fólki kost á að eiga nærandi stund við samtal milli sjónlistar og tónlistar. Á efnisskránni eru verk eftir Ernesto Köhler, Hector Berlioz, Jacques Ibert og Ian Clarke.