Akureyri Glerárkirkja.
Akureyri Glerárkirkja. — Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Orð dagsins: Sonur ekkjunnar í Nain.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Klassíski kór Akureyrarkirkju syngur. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Tekið verður við samskotum fyrir vinasöfnuð okkar í Kapkoris í Keníu.

Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Jón Ágúst Eyjólfsson.

AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.

ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Nýstofnaður barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Þorgerður Þorkelsdóttir leikur á hljóðfæri. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szkláner organista. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur og Hrannars Inga Arnarssonar.

ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson, nývígður prestur til Austfjarðaprestakalls, annast samverustund sunnudagaskólans. Félagar úr Kór Áskirkju leiða sönginn. Orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi í Ási eftir messu.

BESSASTAÐASÓKN | Bessastaðasókn tekur þátt í fjölskylduhátíð í Víðistaðakirkju 6. október. Rúta bíður okkar í safnaðarheimilinu Brekkuskógum 1 en lagt verður af stað kl. 10.50 og komið heim kl. 13.30.

BREIÐHOLTSKIRKJA | Hallgrímsmessa kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar. Kór Breiðholtskirkju syngur, stjórnandi er Örn Magnússon. Sunnudagaskóli á sama tíma. Ensk bænastund og barnastarf k. 14. Prestur er Toshiki Toma.

BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir og Pálmi. Bleik guðsþjónusta og innsetning kl. 14.

Kristján Jóhannsson og Tónbræður syngja, Jónas Þórir við hljóðfærið. Bolvíkingar aðstoða. Gestur Pálmason les ritningartexta og Berglind Halla Elísdóttir syngur.

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur setur inn í embætti tvo presta í Fossvogsprestakall, sr. Evu Björk Valdimarsdóttur og sr. Maríu Ágústsdóttur.

DÓMKIRKJA KRISTS konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa.

EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskólinn kl. 10.30. Bleik messa kl. 20. Kvöldmessa þar sem stundin er helguð árvekniátaki gegn krabbameini. Sóley Guðmundsdóttir segir okkur reynslusögu sína tengda þeim vágesti. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Organisti er Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir leiðir stundina og flytur hugvekju.

Kaffisopi eftir messu og tekið við frjálsum framlögum til Krabbameinsfélags Austurlands. Ekki spillir að mæta í bleiku!

FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Ómar þjónar ásamt Mörtu og Ásgeiri. Meðhjálpari er Jóhanna Freyja. Kaffi og djús eftir stundina.

FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Fjölskylduhátíð kl. 14. Barna- og krílakórar koma fram og syngja ásamt kirkjukórnum. Hljómsveit kirkjunnar spilar. Kaffisala Kvenfélagsins verður í safnaðarheimilinu að lokinni fjölskylduhátíð.

FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta.

GARÐAKIRKJA | Klassísk messa kl. 14. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og organisti er Jóhann Baldvinsson.

GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar. Organisti er Hákon Leifsson og Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.

Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng | Selmessa kl. 13. Séra Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og Vox Populi leiðir söng.

GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir þjónar ásamt messuþjónum og fermingarfjölskyldum. Ásta Haraldsdóttir annast tónlist ásamt félögum úr Kirkjukór Grensáskirkju. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni segir frá málverkasýningu sinni í anddyri kirkjunnar. Konfekt og kaffi. Við guðsþjónustu í Bústaðakirkju kl. 14 setur prófastur nýskipaða presta Fossvogsprestakalls inn í embætti. Á þriðjudag er kyrrðarstund kl. 12 og opið hús til kl. 14. Á fimmtudag er núvitundarstund kl. 18.15-18.45.

GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Messa með altarisgöngu sunnudag kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Prestur er Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur Grundar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur organista.

GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.

Prestur er Sighvatur Karlsson og hann og Pétur Ragnhildarson sjá um messuna. Barnakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Sigríðar Soffíu og Svanfríðar Gunnarsdóttur. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi í boði eftir messuna.

HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduhátíð í Víðistaðakirkju kl. 11. Sameiginleg fjölskylduhátíð þjóðkirknanna í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi. Hoppukastalar, andlitsmálun, leikir og fjör, Sirkus Íslands, blöðrulistamenn, hljómsveit, leiklistarhópur, leikþáttur Miskunnsami Samverjinn, barnakórar, pylsur og djús. Hátíðin fer fram í Víðistaðakirkju og í íþróttahúsi Víðistaðaskóla.

HALLGRÍMSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Umsjón: dr. Sigurður Árni Þórðarson og Kristný Rós Gústafsdóttir, verkefnastjóri og djákni. Fermingarbörn og hópur messuþjóna aðstoðar. Organisti er Douglas A. Brotchie. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.

Bogi Benediktsson og Rósa Árnadóttir stýra barnastarfinu. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8 og hádegisfyrirlestur kl. 12. Kyrrðarstund fimmtud. kl. 12.

HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kordía kór Háteigskirkju leiðir messusöng. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Eiríkur Jóhannsson.

HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Séra Karen Lind Ólafsdóttir og Lára Bryndís organisti sjá um stundina. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu.

HRAFNISTA Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 14 í samkomusalnum Helgafelli, 4. hæð. Félagar úr kór Áskirkju syngja. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Ritningarlestra les Kristín Guðjónsdóttir. Sr. Svanhildur Blöndal prédikar og þjónar fyrir altari.

ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma kl. 13 með lofgjörð og fyrirbænum. Aldursskipt barnastarf. Ólafur H. Knútsson prédikar. Kaffi að samverustund lokinni.

KEFLAVÍKURKIRKJA | Í fjölskyldumessu kl. 11 syngur Barnakór Keflavíkurkirkju við undirspil Arnórs Vilbergssonar organista. Sunnudagaskólaleiðtogarnir Helga, Ingi Þór og Jóhanna leiða stundina og sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Jóhanna Árnadóttir og Jóhann Kristbergsson eru messuþjónar. Albert Hinriksson og fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð.

KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson leiðir ásamt sunnudagaskólakennurum. Skólakór Kársnesskóla syngur.

LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. Kór Langholtskirkju syngur og organisti er Magnús Ragnarsson. Sunnudagaskólinn er á sínum stað og tekur Sara Grímsdóttir vel á móti börnunum. Léttur hádegisverður eftir messu.

LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Elín Sigríður Jónsdóttir syngur einsöng. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli í safnaðarheimili á meðan. Kaffi og samvera á eftir.

8.10. Kyrrðarbæn kl. 20. Kristin íhugun. Húsið opnað kl. 19.40.

9.10. Foreldrasamvera kl. 10-12.

Félagsmiðstöðin Dalbraut 18-20. Helgistund með sr. Davíð Þór og Elísabetu organista.

10.10. Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Hádegismatur og opið hús á eftir.

Hásalurinn, Hátúni 10. Helgistund með sr. Davíð Þór og sr. Hjalta Jóni.

LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson prédikar og þjónar til altaris ásamt Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi, sem vísiterar Lindakirkju um þessar mundir.

NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Umsjón með barnastarfinu hafa Margrét H. Atladóttir, Gunnar T. Guðnason og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffiveitingar á Torginu eftir messu.

SALT kristið samfélag | Sameiginlegar samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. Barnastarf. Túlkað á ensku.

SELFOSSKIRKJA | Bleik messa kl. 11 í tilefni af bleikum október. Guðmunda Egilsdóttir segir frá reynslu sinni. Félagar úr Krabbameinsfélagi Árnessýslu lesa. Kirkjukór og unglingakór Selfosskirkju syngja undir stjórn Edit Molnár, prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir. Fjölskyldusamvera á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjón Jóhönnu Ýrar, og að messu lokinni er borin fram súpa í safnaðarheimilinu. Allur ágóði af súpunni rennur til Krabbameinsfélags Árnessýslu.

SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Kvöldguðsþjónusta kl. 20, ath. breyttan messutíma. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar og Kór Seljakirkju flytur tónlist undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar.

SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða almennan safnaðarsöng. Sveinn Bjarki og leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Kaffiveitingar og samfélag í safnaðarheimilinu eftir athöfn.

SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna.

VÍDALÍNSKIRKJA | Batamessa kl. 17. Helga Björk Jónsdóttir djákni og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjóna fyrir altari. Vinur í bata flytur vitnisburð. Jóhann Baldvinsson leikur á orgel. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir syngur einsöng og Davíð Sigurgeirsson leikur undir. Létt máltíð í safnaðarheimili eftir messu.

VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sameiginleg fjölskylduhátíð þjóðkirknanna í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi – fer fram í Víðistaðakirkju og íþróttahúsi Víðistaðaskóla kl. 11. Fjölbreytt dagskrá í kirkjunni og Sirkus Íslands, hoppukastalar, andlitsmálun, pylsur og djús, leikir og fjör á eftir í íþróttasalnum.

(Lúk. 7)

(Lúk. 7)

Höf.: (Lúk. 7)