Gunnar Guðmundsson lungnalæknir vill að almennri flugeldanotkun verði hætt hér á landi vegna áhrifa svifryksmengunarinnar á lungnaheilsu.

Gunnar Guðmundsson lungnalæknir vill að almennri flugeldanotkun verði hætt hér á landi vegna áhrifa svifryksmengunarinnar á lungnaheilsu. „Ég tel að við getum ekki boðið lungnasjúklingum upp á það að verða fyrir öllum þessum óþægindum,“ segir Gunnar sem hefur veitt starfshópi umhverfisráðherra, sem er að meta hvort takmarka eigi flugeldanotkun, ráð og upplýsingar.

Gunnar segir að mengunargildin fari langt yfir heilsuverndarmörk um áramót og eigi Íslendingar Evrópumet í skammtímamengun. „Og það veit enginn hver áhrifin eru til dæmis á börn því mengunin gæti haft áhrif á lungnaþroska þeirra seinna meir,“ segir hann. Börnin andi jafnvel ennþá meiri mengun að sér við jörðu en hinir fullorðnu. 24