Hólmar Örn Eyjólfsson hefur heldur betur komið sterkur inn í lið Levski Sofia eftir að hann sneri til baka úr erfiðum hnémeiðslum í september.
Hólmar Örn Eyjólfsson hefur heldur betur komið sterkur inn í lið Levski Sofia eftir að hann sneri til baka úr erfiðum hnémeiðslum í september. Hólmar, sem sleit krossband í nóvember á síðasta ári, skoraði fyrsta mark sinna manna með skalla í 3:0 sigri gegn Etar í búlgörsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Þetta var þriðja mark Hólmars í tíu leikjum og sjötta mark hans fyrir félagið en hann gekk í raðir þess fyrir rúmum tveimur árum. gummih@mbl.is