Í myndatöku Þeir félagar Siggi og Logi bregða á leik í myndatöku fyrir væntanlega fyrir væntanlegt kynningarefni þáttarins
Í myndatöku Þeir félagar Siggi og Logi bregða á leik í myndatöku fyrir væntanlega fyrir væntanlegt kynningarefni þáttarins
Nýr síðdegisþáttur K100 með þeim Loga Bergmann og Sigga Gunnars fór í loftið upp úr miðjum október og fer vel af stað.

„Mér finnst frábært að vinna með Sigga. Samstarfið gengur vel og við erum léttir á því saman síðdegis,“ segir Logi Bergmann spurður um hvernig nýi þátturinn leggst í hann. Logi er einn reyndasti fjölmiðlamaður landsins og þekkja flestir til ferils hans. Siggi er sömuleiðis reyndur útvarpsmaður og hefur gríðarlega þekkingu á miðlinum, en hann er með meistaragráðu í fjölmiðlafræðum með áherslu á útvarp frá Háskólanum í Sunderland í Bretlandi. Það er því óhætt að segja að það sé mikil reynsla á bak við nýja þáttinn.

„Það er áskorun að takast á við að gera nýjan síðdegisþátt því það er mikil samkeppni í útvarpinu á þessum tíma dags en ég hlakka til að takast á við hana með Loga,“ segir Siggi um samstarf þeirra félaga.

„Áherslan er á að velja skemmtilegri leiðina í lífinu, vera léttir og lifandi,“ segir Logi um efnistökin. Það er óhætt að segja að gleðin ráði ríkjum hjá þeim félögum, en ófá hlátrasköllin hafa heyrst í fyrstu þáttunum.

„Við spjöllum við áhugavert fólk um skemmtilega hluti og erum ekkert að taka okkur of alvarlega. Lífið er miklu skemmtilegra þannig. Við viljum bjóða upp á valkost við hin síðdegisútvörpin sem eru eilítið þyngri,“ bætir Logi við.

„En við munum auðvitað fylgjast vel með málefnum líðandi stundar og gera því sem er að gerast góð skil auk þess sem við erum með fréttir á heila tímanum,“ segir Siggi.

Það er því um að gera að stilla inn á þá félaga síðdegis og taka skemmtilegri leiðina heim. Hægt er að hlusta á öll hljóðbrot úr þáttunum á heimasíðu K100 á k100.is og einnig þættina í heild sinni án tónlistar og auglýsinga á síðunni og í helstu podcast-veitunum. Leitaðu bara að „Loga Bergmann og Sigga Gunnars“.