Liðsstyrkur Jóhann Birgir Ingvarsson er kominn til HK að láni frá FH.
Liðsstyrkur Jóhann Birgir Ingvarsson er kominn til HK að láni frá FH. — Morgunblaðið/Hari
Nýliðar HK, sem verma botnsætið í Olísdeild karla án stiga, hafa fengið liðsstyrk frá FH, en Jóhann Birgir Ingvarsson hefur verið lánaður frá FH til Kópavogsliðsins til áramóta.

Nýliðar HK, sem verma botnsætið í Olísdeild karla án stiga, hafa fengið liðsstyrk frá FH, en Jóhann Birgir Ingvarsson hefur verið lánaður frá FH til Kópavogsliðsins til áramóta. Jóhann Birgir hefur ekkert komið við sögu með FH-ingum á tímabilinu en hann er nýkominn af stað eftir meiðsli.

Jóhann, sem er rétthent skytta og er 25 ára gamall, skoraði 52 mörk með FH-ingum í Olísdeildinni á síðustu leiktíð. Hann leikur fyrsta leik sinn með HK gegn Val á sunnudaginn. gummih@mbl.is