[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Handbolti Kristján Jónsson kris@mbl.is Arnar Freyr Arnarsson gat ekki leikið með íslenska landsliðinu í handknattleik í vináttulandsleikjunum gegn Svíum í Svíþjóð á dögunum.

Handbolti

Kristján Jónsson

kris@mbl.is Arnar Freyr Arnarsson gat ekki leikið með íslenska landsliðinu í handknattleik í vináttulandsleikjunum gegn Svíum í Svíþjóð á dögunum. Sársauki í hné var farinn að gera Arnari erfitt fyrir en hann segir meiðslin ekki vera alvarlegs eðlis.

„Fyrir landsleikjahlé í síðasta mánuði var sprautað í hnéð. Hægt og rólega ætti ég að verða góður í hnénu. Læknarnir hérna segja að þetta séu álagsmeiðsli en ég fékk fyrst verki á síðasta tímabili þegar ég spilaði í Svíþjóð. Sársaukinn hefur aukist og eitthvað þurfti að gera til að ég gæti beitt mér eðlilega á vellinum. Eins og staðan er núna tek ég ekki mikinn þátt í æfingum liðsins en ég hef reynt að spila og hjálpa liðinu aðeins. En ég tel að ég sé á batavegi og finn ekki fyrir neinu þegar ég geng upp stiga svo ég taki dæmi. Ég þarf að ná upp eðlilegum styrk í hnénu og í vöðvunum í kringum hnéð. Það var nauðsynlegt að fá tíu daga frí þegar landsliðin komu saman.“

Spurður hvort hann óttist að vera ekki fullfrískur þegar EM landsliða fer fram í janúar segist Arnar ekki sjá annað fyrir sér en að hann verði orðinn góður.

„Nei, nei. Maður veit aldrei en hvað þessi meiðsli varðar eiga þau ekki að vera nein hindrun.“

Frá Svíþjóð til Danmerkur

Arnar færði sig síðasta sumar frá Kristianstad í Svíþjóð yfir til GOG í Danmörku. „Liðin eru klárlega sterkari í Danmörku en í Svíþjóð. Leikmenn eru líkamlega sterkari, en í dönsku deildinni er einnig talsvert af þekktum nöfnum. Munurinn á þessum deildum er töluverður,“ sagði Arnar, en hann spilar bæði vörn og sókn hjá GOG eins og hann gerði hjá Kristianstad. „Ég er í miðri vörninni og spila bæði sókn og vörn. En ég fékk ekki stórt hlutverk í upphafi tímabilsins.“

GOG er í 9. sæti í dönsku deildinni eftir níu umferðir. Liðið hefur unnið fjóra leiki en tapað fimm, sem þykir ekki ásættanlegt á þeim bænum. Liðið leikur einnig í Meistaradeild Evrópu og þar gengur öllu betur því liðið er í 2. sæti í sínum riðli. Hefur unnið fjóra leiki en tapað tveimur.

„Okkur hefur ekki gengið eins vel og við bjuggumst við. Mörgum leikjum höfum við tapað klaufalega og vorum yfir í mörgum tapleikjunum. Það hefur því verið svolítil brekka hjá okkur í deildinni og þar er staða okkar ekki nógu góð en við höfum verið fínir í Meistaradeildinni. Liðið á meira inni, en í hópnum eru margir nýir leikmenn og við þurfum því líklega að slípa okkur betur saman til að ná betri úrslitum.“

Þrír Íslendingar í GOG

GOG teflir fram þremur Íslendingum í vetur. Óðinn Þór Ríkharðsson kom til liðsins sumarið 2018 og síðasta sumar bættust þeir Arnar Freyr og markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson við. Íslendingarnir halda hópinn talsvert.

„Við keyrum alltaf saman á æfingar og höfum haldið nokkur matarboð. Við búum allir í Óðinsvéum og erum í göngufæri hver frá öðrum,“ sagði Arnar, en Viktor Gísli er að stíga fyrstu skref sín í atvinnumennsku um þessar mundir. Miklar vonir eru bundnar við að hann verði framtíðarmarkvörður í landsliðinu. Hvernig hefur honum gengið hjá GOG?

„Hinn markvörðurinn okkar meiddist og Viktor fékk því að spila helling í upphafi tímabilsins. Nú hjálpast þeir meira að, en ég ímynda mér að erfitt hafi verið fyrir hann að vera einn í markinu þegar hann var nýkominn út. Mér finnst hann hafa staðið sig vel,“ sagði Arnar Freyr Arnarsson í samtali við Morgunblaðið, en hann er samningsbundinn GOG fram á sumar 2021.