Reynir Eyjólfsson
Reynir Eyjólfsson
Eftir Reyni Eyjólfsson: "Er það viðunandi, að það sé verið að halda að fólki óbótaefnum án viðurkenndrar gagnsemi og vísbendinga um hið gagnstæða?"

Stórri og vandaðri rannsókn á áhrifum andoxara, E-vítamíns, sem gerð var fyrir mörgum árum var hætt í miðjum klíðum vegna þess að þeir sem fengu andoxarann fengu oftar krabbamein en þeir sem engan fengu. Önnur rannsókn sýndi að reykingamenn, sem fengu andoxara, betakarótín, við augnsjúkdómi fengu oftar lungnakrabbamein en þeir sem engan fengu. Fleiri hliðstæð dæmi mætti nefna. Þetta bendir til þess að mikil notkun andoxara sé af hinu illa, sem kemur heim og saman við það að líkaminn notar oxunarferli og sindurefni, free radicals, til að vinna á krabbameinsfrumum og öðrum framandi frumum.

Hér á landi er fyrirtæki, sem framleiðir, auglýsir grimmt og selur fjölmargar vörutegundir með astaxantíni, sem er öflugur andoxari, náskyldur betakarótíni, miklu sterkari en E-vítamín og betakarótín. Að sögn framleiðandans á þetta óbótaefni að gagnast við fjölda sjúkdóma, kvilla og einkenna enda þótt ábyrgur aðili á borð við WebMD, www.webmd.com, segi að það vanti rannsóknir til að staðfesta allt þetta. Astaxantín er heldur ekki að finna í Merck Manual, www.merckmanuals.com/professional, sem sýnir að efnið hefur enga þýðingu í læknisfræði, það er að það er því bara vafasöm snákaolía.

Mér er spurn: er það viðunandi, að það sé verið að halda að fólki óbótaefnum án viðurkenndrar gagnsemi og vísbendinga um hið gagnstæða? Hvað um eftirlit? Hérlendis sýnist mér það vera í algeru skötulíki hjá aðila, sem vart getur greint á milli nauta- og hrossakjöts. Þess vegna getur hvaða afglapi sem er framleitt og selt hvaða óbótaefni sem er svo lengi sem það er ekki bráðdrepandi, virðist vera. Og það sem mér finnst vera fyrir neðan allar hellur: apótekin taka virkan þátt í öllu ruglinu með því að selja allt þetta jukk.

Höfundur er doktor í lyfjafræði.