Sveindís Jane Jónsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru á skotskónum fyrir íslenska U19 ára landslið kvenna í knattspyrnu sem vann þægilegan 2:0-sigur gegn Svíþjóð í vináttulandsleik í Egilshöll í gær.
Leikurinn fór fjörlega af stað og strax á 2. mínútu kom Sveindís Jane íslenska liðinu yfir með laglegu skoti úr teignum.
Karólína Lea bætti svo við öðru marki Íslands á 66. mínútu eftir laglegan undirbúning Áslaugar Mundu Gunnlaugsdóttir og Hafrúnar Rakelar Halldórsdóttur.
Þetta var annar vináttuleikur liðanna á þremur dögum en á þriðjudaginn síðasta vann íslenska liðið 3:0-sigur gegn því sænska í Fífunni í Kópavogi. bjarnih@mbl.is