Sjávarspendýr Eitt verka Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur sem sýnt verður í Neskirkju.
Sjávarspendýr Eitt verka Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur sem sýnt verður í Neskirkju.
Ég hef misst sjónar á þér nefnist einkasýning sem Anna Júlía Friðbjörnsdóttir opnar í Neskirkju á sunnudag kl. 12 að lokinni messu.
Ég hef misst sjónar á þér nefnist einkasýning sem Anna Júlía Friðbjörnsdóttir opnar í Neskirkju á sunnudag kl. 12 að lokinni messu.

„Anna Júlía gerir samband manns og náttúru að viðfangsefni sínu og sækir efnivið í andstæða póla; annars vegar í hinn tilbúna manngerða heim og hins vegar í náttúrulegt lífríki sjávar. Sýningin ber með sér áríðandi en þögul skilaboð um stöðu sjávarspendýra á válista og vekur til umhugsunar þá firringu eða fjarlægð sem orðið hefur milli manns og náttúru.

Verkin byggjast á morskóða, sem notaður er í alþjóðlega stöðluð kallmerki, og birtist m.a. í ljósaseríum í gluggum og utanhúss. Þannig seilist sýningin út í almannarýmið og tengir saman tvær opinberar stofnanir í næsta nágrenni hvor við aðra; Safnaðarheimili Neskirkju (miðstöð hins andlega) og Náttúruminjasafn Íslands (varðveislustofnun hins náttúrulega),“ segir í tilkynningu.

Sýningin er gerð í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands og styrkt af Myndlistarsjóði. Sýningin stendur til 23. febrúar 2020.