Stórskytta Mikkel Hansen er orðinn heil heilsu eftir höfuðmeiðsli.
Stórskytta Mikkel Hansen er orðinn heil heilsu eftir höfuðmeiðsli.
Eftir að hafa verið frá æfingum og keppni í tvo mánuði vegna höfuðmeiðsla er danska stórskyttan Mikkel Hansen, liðsfélagi Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Paris SG, mættur aftur út á völlinn.

Eftir að hafa verið frá æfingum og keppni í tvo mánuði vegna höfuðmeiðsla er danska stórskyttan Mikkel Hansen, liðsfélagi Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Paris SG, mættur aftur út á völlinn. Hansen fékk heilahristing á æfingu Parísarliðsins í september og var óvíst hvenær hann gæti snúið til baka. En nú anda Danir léttar. Þeirra besti leikmaður er orðinn heill heilsu og heimsmeistararnir geta notað krafta hans á EM í janúar þar sem þeir mæta Íslendingum í fyrsta leik í Malmö. gummih@mbl.is