[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
*Kylfingarnir Andri Þór Björnsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru báðir í toppbaráttu eftir fyrsta hring á annars stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi en leikið er á Spáni. Fimm íslenskir kylfingar komust á annað stigið.

Andri lék hringinn í gær á 66 höggum eða sex höggum undir pari og er hann í áttunda sæti. Guðmundur Ágúst lék á 68 höggum, fjórum höggum undir pari, og er í 13. sæti. Leika þeir á Desert Springs-vellinum en um 20 efstu kylfingarnir á hverjum velli fara áfram í þriðja og síðasta úrtökumótið.

Rúnar Arnórsson , Haraldur Franlín Magnús og Bjarki Pétursson eru einnig á meðal þátttakenda.