Körfubolti
Kristján Jónsson
Skúli B. Sigurðsson
Þórsarar frá Þorlákshöfn eru búnir að finna taktinn í Dominos-deild karla í körfuknattleik. Liðið vann sinn þriðja leik af síðustu fjórum í gær þegar það heimsótti Fjölni í Grafarvoginn í 6. umferð. Fjölnir hafði betur 91:83 en liðið hafði yfirhöndina í leiknum frá því í öðrum leikhluta.
Enginn skyldi vanmeta Þórsliðið þótt það hafi farið rólega af stað í fyrstu leikjunum í deildinni. Sé mið tekið af leiknum í gær þá er andinn til staðar hjá Þórsurum. Þeir léku með bros á vor og fögnuðu þegar vel var gert. Reynsluboltinn Friðrik Ingi Rúnarsson virðist vera að slípa mannskapinn saman. Klókt var hjá honum að ná í Dino Butorac sem sýndi með Tindastóli síðasta vetur að hann skilur leikinn vel. Heimamennirnir Emil Karel Einarsson og Halldór Garðar Hermannsson eru í stórum hlutverkum og skila sínu í stigaskorun. Fæturnir á Marko Bakovic virka ekki eins og styrkustu stoðir sem ég hef séð en það er merkilegt hversu miklum krafti hann nær úr þessum spóaleggjum.
Fjölnir þarf að safna stigum. Deildin er geysilega sterk og erfitt fyrir nýliða að festa sig í sessi. Liðið átti góða möguleika á sigri gegn Val og Grindavík en náði ekki að landa stigunum. Slíkt gæti reynst dýrt. Liðið átti ekki eins mikla möguleika í gær og sóknir liðsins voru fremur hægar að mér fannst. Auk þess skoraði fyrirliðinn Róbert Sigurðsson ekki stig sem er afar sjaldgæft en hann gaf þó fimm stoðsendingar.
Fjölnir hefur dregið öflugan uppalinn leikmann á flot, Tómas Heiðar Tómasson. Eftir áramót verður hann væntanlega farinn að skila ágætu framlagi og Orri Hilmarsson verður orðinn leikfær. Þá verður áhugavert að sjá hvar Fjölnisliðið stendur. kris@mbl.is
Stjarnan sterkari á ögurstundu
Grindavík og Stjarnan mættust í Mustad-höllinni í Grindavík. Bæði lið mættu til leiks þetta kvöldið eftir ansi skrautlega sigra í síðustu umferð þar sem úrslit réðust á síðustu sekúndum leikjanna. Þetta kvöldið voru síðustu tíu mínútur leiksins eign gestana úr Garðabæ sem hófu sig á brott úr Grindavík með 95:83-sigur í farteskinu.Eins og áður sagði hafði spenna ríkt á lokametrum síðustu leikja hjá báðum liðum og þessi „spennufíklalið“ virtust langt fram eftir leik í gærkvöldi ætla að stefna í sömu átt með þennan leik. Leikurinn var hnífjafn á flestum tölum þangað til, sem fyrr segir á síðustu metrunum. Það sem gerði endanlega útslagið var að Stjörnumenn héldu sig við sinn leik á meðan Grindvíkingar virtust missa einbeitninguna þegar mest á reyndi. Varnarleikur beggja liða var kannski ekkert gríðarlegt fagnaðarefni en sókn Grindvíkinga, sem hafði verið skipulagðari í gær enn megnið af vetri, fór í baklás og í raun sama agaleysi og stundum loðir við liðið. Það sauð á þjálfara þeirra Daníel Guðna eftir leik og hafði hann ærna ástæðu til. Stjörnumenn klára í bili sinn Suðurnesjarúnt með tveimur sigrum og gríðarlega sterkt fyrir þá að hirða sigra í Njarðvík og Grindavík án Hlyns Bæringssonar sem enn er meiddur. Yfirburðamaður kvöldsins var Ægir Þór Steinarsson sem tók sóknarleik Stjörnumanna á herðar sínar þetta kvöldið og skoraði 27 stig. „Gríðarlega mikilvægir og góðir sigrar hér síðustu tveir en við getum bætt okkar leik,“ sagði Ægir eftir leik. skulibsig@mbl.is
Keflvíkingar ósigraðir
Keflavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar með sterkum fimmtán stiga útisigri gegn Þór í Höllinni á Akureyri. Leiknum lauk með 95:80-sigri Keflavíkur en mikið jafnfræði var með liðunum, framan af leik.Khalil Ahmad fór mikinn í liði Keflavíkur og skoraði 30 stig og Dominykas Milka var með tvöfalda tvennu, 23 stig og fimmtán fráköst. Hjá Þórsurum var Hansel Suarez stigahæstur með 30 stig.
Gerald Robinson átti mjög góðan leik fyrir Hauka gegn sínu gömlu félögum í ÍR á Ásvöllum þar sem Haukur fögnuðu öruggum 101:82-sigri. Robinson var með tvöfalda tvennu en hann skoraði 20 stig og tók ellefu fráköst í leiknum, ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar.
Hjá ÍR var Collin Pryor stigahæstur með 23 stig, níu fráköst og fjórar stoðsendingar.
FJÖLNIR – ÞÓR Þ. 83:91
Dalhús, Dominos-deild karla, fimmtudaginn 7. nóvember 2019.Gangur leiksins : 4:3, 8:9, 16:9, 18:15 , 25:22, 27:30, 29:41, 34:48 , 43:48, 48:59, 53:65, 57:71 , 59:71, 66:80, 73:82, 83:91 .
Fjölnir: Viktor Lee Moses 28/10 fráköst/6 stoðsendingar, Srdan Stojanovic 25/9 fráköst, Jere Vucica 21/9 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 7, Hlynur Breki Harðarson 2.
Fráköst: 24 í vörn, 8 í sókn.
Þór Þorlákshöfn: Vincent Terrence Bailey 21/9 fráköst, Emil Karel Einarsson 19/7 fráköst, Dino Butorac 17/7 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 17/5 fráköst/5 stoðsendingar, Marko Bakovic 12/12 fráköst, Davíð Arnar Ágústsson 3, Ragnar Örn Bragason 2.
Fráköst: 35 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Ísak Ernir Kristinsson, Rögnvaldur Hreiðarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson.
Áhorfendur: Á að giska 180.