Gæsluvarðhald yfir Gunnari Jóhanni Gunnarssyni sem grunaður er um að hafa orðið Gísla Þór Þórarinssyni að bana við heimili þess síðarnefnda í þorpinu Mehamn í Finnmörku nyrst í Noregi undir lok apríl, hefur verið framlengt enn einu sinni, nú um fjórar...

Gæsluvarðhald yfir Gunnari Jóhanni Gunnarssyni sem grunaður er um að hafa orðið Gísla Þór Þórarinssyni að bana við heimili þess síðarnefnda í þorpinu Mehamn í Finnmörku nyrst í Noregi undir lok apríl, hefur verið framlengt enn einu sinni, nú um fjórar vikur. Ákæra hefur ekki verið gefin út í málinu en enn er stefnt að því að rétta í málinu á þessu ári. Kemur þetta fram í norska vefmiðlinum iFinnmark .

Gunnar Jóhann var handtekinn og yfirheyrður ásamt öðrum manni skömmu eftir að tilkynnt var um að Gísli Þór hefði orðið fyrir skoti úr haglabyssu. Gísli lést af sári sínu. Mennirnir eru allir íslenskir sjómenn sem bjuggu og störfuðu í þorpunum Gamvik og Mehamn. Gísli Þór og Gunnar Jóhann voru auk þess hálfbræður. Gunnar hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan en gæsluvarðhaldsúrskurður þess sem var með honum var felldur úr gildi.

Lögreglan hefur fyrir nokkru lokið rannsókn sinni og sent málið til saksóknaraembættis Troms og Finnmerkur til ákvörðunar um ákæru. Fram kemur í iFinnmark að þótt tafir hafi orðið á rannsókninni er enn stefnt að því að rétta í málinu á þessu ári. Í þeim tilgangi hefur það verið sett á dagskrá Héraðsdóms Austur-Finnmerkur 2. desember. helgi@mbl.is