Flutningabíllinn rannsakaður.
Flutningabíllinn rannsakaður.
Allir farandmennirnir 39 sem fundust látnir í frystigámi flutningabíls í Bretlandi 23. október komu frá Víetnam. Breska lögreglan og stjórnvöld í Víetnam skýrðu frá þessu í gær.
Allir farandmennirnir 39 sem fundust látnir í frystigámi flutningabíls í Bretlandi 23. október komu frá Víetnam. Breska lögreglan og stjórnvöld í Víetnam skýrðu frá þessu í gær. Fulltrúar stjórnarinnar í Víetnam vinna nú að því að flytja líkin þangað sem fyrst, að sögn sendiráðs landsins í London. Breska lögreglan sagði í fréttatilkynningu skömmu eftir að farandmennirnir fundust látnir í frystigámnum að þeir væru allir frá Kína en það reyndist ekki rétt. Bílstjóri flutningabifreiðarinnar, 25 ára Norður-Íri, hefur verið ákærður fyrir manndráp. Ellefu menn hafa verið handteknir í Víetnam vegna gruns um að þeir tengist málinu.