Grátt svæði. S-Enginn
Norður | |
♠Á8765 | |
♥K2 | |
♦5 | |
♣DG987 |
Vestur | Austur |
♠G10 | ♠KD432 |
♥G1074 | ♥653 |
♦KD964 | ♦1073 |
♣K3 | ♣54 |
Suður | |
♠9 | |
♥ÁD98 | |
♦ÁG82 | |
♣Á1062 |
Suður spilar 7♣.
Öll kerfi hafa sín gráu svæði þar sem „allt orkar tvímælis þá er gert er“. Lítum til suðurs, sem opnar á Standard-tígli með 15 punkta. Norður svarar fyrirsjáanlega á 1♠ og nú þarf suður að velja næstu sögn. Hvað segir lesandinn?
„Eru nú tveir kostir til og hvorgi góður,“ svo vitnað sé aftur í Njálu. Annar er 1G, hinn 2♣. Grandið er undirmelding, en 2♣ ætti að sýna meiri skiptingu. Báðar sagnir voru valdir í BBO-leik ensku landsliðkeppninnar með slæmum árangri.
Sjálfur landsliðsþjálfarinn David Burn sagði 1G og spilaði þann samning. Norður hefði að skaðlausu mátt gefa eina sögn, en hann hélt að 10 punktar á móti 12-14 punkta flatneskju dygði ekki í geim. Hinum megin fylltist norður fítonskrafti þegar hann frétti af lauflit hjá opnara og keyrði í alslemmu. Ekki alveg vonlaust spil fyrir fram, en einum of mikið í þessari legu.