Bólusetning Vafalaust fá færri bóluefni gegn inflúensu en vilja.
Bólusetning Vafalaust fá færri bóluefni gegn inflúensu en vilja. — Morgunblaðið/Hari
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það er búið að dreifa öllu því bóluefni sem hingað kom til lands, eða alls 70.000 skömmtum,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til inflúensubóluefnis.

Kristján H. Johannessen

khj@mbl.is

„Það er búið að dreifa öllu því bóluefni sem hingað kom til lands, eða alls 70.000 skömmtum,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til inflúensubóluefnis.

Þórólfur segir eftirspurn á Íslandi eftir inflúensubóluefni hafa aukist mjög undanfarin ár.

„Í fyrra var dreift um 73.000 skömmtum og árið þar á undan voru skammtarnir um 70.000. Fyrir nokkrum árum voru þeir aftur á móti nokkru færri, eða um 55.000. Eftirspurn eftir bóluefni hefur því aukist mjög mikið síðastliðin ár og vafalaust væri hægt að dreifa enn fleiri skömmtum en við bara fáum þá ekki,“ segir Þórólfur og bætir við að mikil spurn sé einnig á heimsvísu eftir bóluefninu. „Við höfum verið með útboðssamning fyrir 65.000 skömmtum og höfum keypt aukalega 5.000 síðastliðin þrjú ár.“

Annað bóluefni tekur við

Á heimasíðu Ríkiskaupa er nú óskað eftir tilboðum í bóluefni gegn inflúensu í árlegri bólusetningu. Ástæða útboðsins er sú að hætt hefur verið að framleiða það bóluefni sem inniheldur þrjá stofna inflúensu. Þess í stað verður framleitt bóluefni sem inniheldur fjóra stofna.

Þá segir Þórólfur inflúensutilfelli vera fá það sem af er vetri. Búast má við fleirum eftir áramót.