50 ára Pálmi fæddist á Akureyri en flutti til Reykjavíkur tveggja ára og býr þar. Hann er rafmagnsverkfræðingur frá HÍ og er sérfræðingur í viðskiptagreind hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hann stýrði í 20 ár bardagalistafélaginu Aikikai Reykjavík.

Maki : Sólbjört Guðmundsdóttir, f. 1969, jógakennari og forstöðukona Ljósheima.

Foreldrar : Símon Steingrímsson, f. 1949, verkfræðingur og vann á Ríkisspítölunum, og Sigrún Höskuldsdóttir, f. 1950, landfræðingur og vann m.a. hjá Handprjónasambandi Íslands og Skógrækt ríkisins. Þau eru bús. í Reykjavík.